
Þann 28. mai var undirritaður málefnasamningur milli Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Sveitarfélaginu Hornafirði. Við erum bjartsýn á þetta samstarf enda hafa þær umræður sem mótuðu þennan málefnasamning einkennst af trausti og heilindum samningsaðila, og er það staðföst trú okkar að það haldi áfram í samstarfi okkar þetta kjörtímabilið.
Sveitarfélagið stendur vel og við erum ákveðin í að halda áfram þeirri innviðauppbyggingu sem hefur verið síðustu árin. Einnig eru málefni fjölskyldunnar áfram í fyrirrúmi sem og ábyrgur rekstur sveitarfélagsins.
Við hlökkum til samstarfsins og vonumst til að sveitarfélagið haldi áfram að dafna, okkur öllum til hagsældar.
Við viljum nota tækifærið og þakka Kex listanum fyrir gott og farsælt samstarf og hlökkum til að vinna með þeim áfram þó það verði með öðru sniði en áður.
Einnig erum við að koma úr árangursríku og ánægjulegu samstarfi við bæjarstjórann okkar, Sigurjón Andrésson sem var ráðinn í júní 2022. Hann stígur nú úr stólum fjórum árum seinna, skilar góðu búi fyrir okkur öll og erum við Sjálfstæðismenn honum gríðarlega þakklátir fyrir hans góðu störf og samstarf við okkur öll.
Þá viljum við einnig koma á framfæri þökkum til kjósenda og sérstaklega þeim sem sóttu viðburði eða fylgdust með okkur með öðrum leiðum, tóku á móti okkur og þeim sem lögðu hönd á plóg í kosningabaráttunni. Við hvetjum alla til að fylgjast vel með og taka þátt í bæjarmálunum á komandi kjörtímabili.
Nú höldum við inn í nýtt samstarf með Framsókn og stuðningsmönnum ásamt nýjum bæjarstjóra, Hjalta Þór Vignissyni, tilbúin að halda áfram góðu starfi fyrir samfélagið okkar, öllum til hagsbóta




