Mynd: Gunnar Stígur Reynisson
Meistaraflokkur eftir sigurinn á Breiðablik og stuðningsmenn troðfylltu stúkuna. Mynd: Gunnar Stígur Reynisson

Meistaraflokkur karla hjá Sindra í körfubolta skrifaði nýjan kafla í sögu félagsins í vor þegar liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeild karla í fyrsta sinn. Tímabilið var sterkt frá upphafi til enda og ljóst var snemma að Sindri ætlaði sér stóra hluti. Liðið endaði í öðru sæti 1. deildar og var lengi vel í baráttu um efsta sætið. Það munaði litlu að Sindri næði deildarmeistaratitlinum, en liðið tapaði gegn Hetti í úrslitaleik um 1. sætið á heimavelli fyrr í vetur.

Auglýsing

Annað sætið dugði þó til að koma Sindra í umspil um sæti í úrvalsdeildinni. Þar mætti liðið Breiðabliki í einvígi þar sem vinna þurfti þrjá leiki. Það þurfti alla fimm leikina til að knýja fram niðurstöðu og oddaleikurinn fór fram á heimavelli Sindra. Stemningin var mikil og leikurinn jafn og spennandi. Breiðablik var yfir í hálfleik, 44:37, en Sindramenn börðust til baka, minnkuðu muninn fyrir fjórða leikhluta og tryggðu sér að lokum 85:80 sigur á lokamínútunum.

Með sigrinum varð ljóst að Sindri mun leika meðal þeirra bestu á næsta tímabili. Fyrir körfuboltann á Höfn er þetta sögulegur árangur og stór stund fyrir leikmenn, þjálfara, stuðningsfólk og allt samfélagið.

Þjálfari Sindra, Nebo, er frá Serbíu, nánar tiltekið frá bænum Melenci þar sem hann ólst upp. Eiginkona hans, Nada, er einnig frá Serbíu, frá bænum Tabanovic. Saman eiga þau tvö börn, Petar sem er sjö ára og Miu sem er að verða fjögurra ára. Eystrahorn hafði samband við Nebo og spurði hann nokkurra spurninga.

Nebo byrjaði að þjálfa yngri flokka á meðan hann var enn leikmaður hjá Vestra og segist fljótlega hafa séð fyrir sér að þjálfun gæti orðið hans framtíðarstarf. Einn stærsti árangurinn á þeim tíma var að vinna Scania Cup með U16 liði Vestra, sem hann segir hafa verið sögulegan árangur fyrir félagið. Síðar þjálfaði hann yngri flokka í Borgarnesi á meðan hann lék með Skallagrími í tvö ár. Fyrsta meistaraflokkslið hans sem aðalþjálfara var ÍA á Akranesi, þar sem hann var einnig í tvö ár áður en leiðin lá til Sindra.

Mynd: Gunnar Stígur Reynisson
Gísli Hallsson sækir að Breiðabliksmönnum. Mynd: Gunnar Stígur Reynisson

Aðspurður hvernig það sé að hafa náð þessum sögulega árangri með Sindra segir Nebo tilfinninguna vera einstaka.

„Þetta er mjög sérstök tilfinning. Ég er mjög ánægður fyrir samfélagið og fólkið sem hefur beðið eftir þessu allt sitt líf. Ég er þakklátur og stoltur af því að fá að vera hluti af þessu.“

Hann segir karakter leikmannanna hafa gert liðið sérstakt á tímabilinu.

„Fyrst og fremst eru þetta góðir einstaklingar og síðan góðir körfuboltamenn. Við náðum að skapa fjölskylduumhverfi og góða stemningu, þannig að allir mættu ánægðir á hverja æfingu og í hvern leik. Menn spiluðu hver fyrir annan og fyrir liðið.“

Mynd: Gunnar Stígur Reynisson
Magnús Svansson tekur sniðskot í leik á móti Snæfelli. Mynd: Gunnar Stígur Reynisson

Stuðningur fólksins í Hornafirði skipti liðið miklu máli, sérstaklega þegar mest reyndi á. Nebo segir að án stuðningsins hefði árangurinn ekki haft sömu merkingu.

„Stuðningurinn hjálpaði okkur á mikilvægustu augnablikunum. Ég vil nota tækifærið og segja stórt takk við alla sem studdu okkur. Fólkið skapaði bestu stemningu sem hægt er að hugsa sér á leikjum.“

Nebo og Nada ásamt börnum sínum tveim. Þeim líkar vel hér á Höfn. Mynd úr einkasafni

Árangurinn hefur ekki aðeins þýðingu fyrir meistaraflokkinn, heldur einnig fyrir unga körfuboltaiðkendur í Hornafirði. Á næsta tímabili fá þeir tækifæri til að sjá bestu leikmenn og lið landsins spila á Höfn. Nebo telur það geta haft mikil áhrif.

„Ég trúi því að þetta hvetji unga leikmenn til að æfa enn meira og verða eins góðir og þeir geta orðið í framtíðinni.“

Nebo segir fjölskylduna una sér vel á Höfn. „Við erum mjög ánægð hér og okkur líður eins og við séum orðin hluti af samfélaginu.“

Næsta tímabil verður krefjandi fyrir félagið. Sindri fer nú upp á næsta stig og mætir sterkustu liðum landsins. Nebo segir stærstu áskorunina verða að aðlagast hraðanum, gæðunum og kröfunum í efstu deild.

„Við þurfum að búa til lið sem getur keppt við bestu og ríkustu liðin á landinu. Ég trúi því að við fáum stuðning frá öllum og að samfélagið verði eitt með okkur. Ég er viss um að við munum standa okkur vel.“

Sagan sem Sindri skrifaði í vor er því ekki aðeins saga um sigur í einum leik. Hún er saga um liðsheild, þrautseigju, stuðning og samfélag sem stóð saman þegar mest á reyndi.

Greinarhöfundur
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

Myndir: Gunnar Stígur Reynisson og af Nebo og fjölskyldu úr einkasafni.

Tags: