Útskrift frá FAS fór fram sl. laugardag. Að þessu sinni útskrifuðust 19 stúdentar, einn nemandi lýkur framhaldsskólaprófi og fjórir nemendur ljúka A-stigi vélstjórnar. Nýstúdentar eru:

Aftari röð til vinstri: Björk Davíðsdóttir, Adisa Mesetovic, Sigrún Birna Steinarsdóttir, Hafdís Lára Sigurðardóttir, Anna Birna Elvarsdóttir, Anna Soffía Ingólfsdóttir, Þórdís Gunnarsdóttir, Petra Augusta Pauladóttir, Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir, Elín Ása Heiðarsdóttir, Lilja Karen Björnsdóttir.
Fremri röð frá vinstri: Eyjólfur Guðmundsson skólameistari, Gunnar Örn Olgeirsson, Rannver Olsen, Eggert Helgi Þórhallsson, Hjörvar Ingi Hauksson, Sigmar Þór Sævarsson, Dagur Snær Guðmundsson, Birkir Freyr Elvarsson, Mirza Hasecic, Sævar Örn Kristjánsson, Berglind Óttarsdóttir.
Á myndina vantar: Jón Guðna Sigurðsson, Helgu Guðrúnu Kristjánsdóttur, og Gísla Skarphéðinn Jónsson sem lauk framhaldsskólaprófi. Eggert Helgi, Gunnar Örn, Hjörvar Ingi og Rannver Olsen luku A-stigi vélstjórnar.

Bestum árangri á stúdentsprófi að þessu sinni náði Hafdís Lára Sigurðardóttir.

Starfsfólk FAS óskar útskriftarnemendum til hamingju með áfangann og óskar þeim gæfu og gengis í framtíðinni. Starfsfólk Eystrahorns tekur undir þær hamingjuóskir.