Umhverfis- og orkustofnun auglýsti í vor eftir umsóknum félagasamtaka eða áhugamannafélaga um styrki til hreinsunar á strandlengju Íslands. Styrkirnir eru veittir á grundvelli aðgerðaráætlunar umhverfis- og auðlindaráðuneytisins í plastmálefnum, Úr viðjum plastsins.
Tveir hópar frá Höfn lögðu inn umsókn og hlutu styrki; Legóhópur Grunnskóla Hornafjarðar og fjáröflunarhópur fótboltakrakka hjá Ungmennafélaginu Sindra.
Austurfjörur
Fótboltakrakkarnir, árgangar 2012 og 2013, fóru sunnudaginn 27. september út á Austurfjörur sem er um 10 km fjara austan við Höfn í Hornafirði, milli Hornafjarðaróss og Stokksness. Foreldrar og aðstoðarfólk fylgdi með, græjuð fjölnotaruslapokum, jeppum og kerrum og einum buggy bíl. Alls taldi hópurinn 37 manns. Á fjörunum var hópnum skipt í tvennt: Helmingurinn fór út að Hornafjarðarós og hinn helmingurinn byrjaði vestan við Langasand. Hugmyndin var að mætast svo á miðri leið. Góð hugmynd – en það var bara svo mikið af rusli í fjörunni að hóparnir náðu ekki saman í lok dags! Fjaran er um 9–10 km á lengd í beinni línu og hópurinn náði að fara alls um 5 km. Alls safnaðist 5,2 tonn af rusli! Mest áberandi var rusl úr sjávarútvegi, eins og netadræsur. En einnig var mikið af alls konar plasti og járnarusli. Ekki er vitað til að áður hafi verið farið í hreinsunarátak í Austurfjörum og augljóst eftir þennan dag að þörf er að fara aftur.


fyrr en eftir sunnudagsmessu nokkurra verðandi fermingarbarna.
Suðurfjörur
Legóhópurinn, sem samanstendur af nemendum úr 8.–10. bekk, fór sunnudaginn 4. október út á Suðurfjörur, sem er um 14 km strandlengja vestan við Höfn, frá Hólmsárósi austur að Hornafjarðarósi. Liðsstyrkur foreldra og aðstoðarfólks skipti legóhópinn öllu máli, eins og hjá fótboltakrökkunum. Fjölnotaruslapokar, jeppar og kerrur voru með í för og einnig var lögð fram dráttarvél í verkið! Alls tóku 35 manns þátt. Hópurinn byrjaði allur við Hólmsárós og fór um það bil 8 km í vestur. Alls söfnuðust 2160 kg af óflokkanlegu rusli. Þess utan tók sjávarútvegsfyrirtækið Skinney-Þinganes við álíka magni af sorpi tengdum sjávarútvegi. Fyrir nokkrum árum var farið í hreinsunarátak í Suðurfjörum. Tilfinning þátttakenda var að það væri ekki mjög mikið rusl í þeim hluta fjörunnar sem farið var núna þannig átakið um árið stendur enn fyrir sínu þó vissulega berst enn rusl að landi. Austasta hluta fjörunnar þarf að skoða betur. Sem fyrr er enn mikið af rusli úr sjávarútvegi í fjörunni.






Sveitarfélagið Hornafjörður styrkti báðar hreinsanir með því að taka við ruslinu og farga. Funi sorphreinsun lagði til gáma og flutning á þeim. Skinney-Þinganes tók við úrgangi frá sjávarútvegi. Öllum aðilum þökkum við kærlega fyrir veittan stuðning.
Markmiðin með svona styrkjum eru að strandlengja Íslands verði hreinsuð með skipulögðum hætti, hreinsuðum ströndum verði haldið við, aukið verði við vitundarvakningu hjá almenningi um mikilvægi strandhreinsana og áhugasamir aðilar virkjaðir til þátttöku í átaki um hreinsun strandlengjunnar.
Við foreldrarnir sem styðjum börnin í þessum verkefnum getum ekki annað en verið stolt af framlagi ungmennanna okkar í átt að hreinni strandlengju Íslands!



