Þrítugsafmæli Kiwanisklúbbsins Óss – saga hans í nútíð og fortíð

0
2094

Þann 12. september fagnar Kiwanisklúbburinn Ós 30 ára afmæli sínu en hann var stofnaður 1987 og vígður 4. maí 1988. Á tímamótum sem þessum er vel við hæfi að líta um öxl og rifja upp aðdraganda að stofnun klúbbsins og sögu hans. Árið 1975 var haldið 5. Umdæmisþing Kiwanis hér á Höfn í Hornafirði og reynt í framhaldi af því að stofna Kiwanisklúbb en það gekk ekki eftir.
Tildrög þess að Kiwanis­klúbburinn Ós var stofnaður á Hornafirði voru þau að umdæmisstjórn umdæmisins auglýsti í Eystrahorni 1987 kynningarfund um Kiwanishreyfinguna á Hótel Höfn. Á þann fund komu frá umdæminu Steindór Hjörleifsson sem nú er látinn og Stefán R. Jónsson. Þar voru líka Helgi Geir, Steinar Guðmunds og Ludwig Gunnarsson. Hvöttu þeir Steindór og Stefán þá félaga til þess að reyna að stofna klúbb hér á Höfn. Skemmst er frá því að segja að þeir félagar náðu saman 30 manna hópi og varð úr að klúbburinn var stofnaður stuttu síðar.
Stofndagur hans er 12. september 1987 og hlaut hann nafnið Ós, en það nafn hlaut flest atkvæði í kosningum um nafn á klúbbinn. Merki klúbbsins hannaði Hinrik Bjarnason málari eða Bassi eins og flestir þekktu hann. Fyrsti forseti Kiwanisklúbbsins Óss var Helgi Geir Sigurgeirsson. Fundirnir voru haldnir á Hótel Höfn og mikil gróska var í starfsemi klúbbsins.
Árið 1988 eða ári eftir stofnunina var haldinn umdæmis­stjórnarfundur hér á Höfn og var umdæmisstjórn mjög ánægð hvernig til tókst með stofnun og starfsemi Óss.
Félagafjöldi í gegnum árin hefur verið að meðaltali um 20 en mest orðið um 30. Fjöldi manns hafa verið félagar. Sumir hafa staldrað stutt við en aðrir hafa verið með okkur til fjölda ára. Í klúbbnum eru tveir stofnfélagar Haukur Sveinbjörnsson og Gunnar Gunnlaugsson en aðrir stofnfélagar hafa flestir flutt búferlum, og sumir þeirra starfa enn með hreyfingunni á þeim svæðum sem þeir búa á.
WP_20170813_12_47_24_ProKiwanisklúbburinn Ós hefur átt fjóra svæðisstjóra í Sögusvæði en þeir eru; Helgi Geir Sigurgeirsson 1991-1992, Haukur Sveinbjörnsson 1997-1998, Stefán Brandur Jónsson 2008-2009, Geir Þorsteinsson 2002-2003 og 2013-2014. Næsti svæðisstjóri Sögusvæðis 2017-2018 verður félagi í Ós, en það er núverandi umdæmisritari Sigurður Einar Sigurðsson. Fyrsti umdæmisstjóri frá Ós er félagi okkar Haukur Sveinbjörnsson en hann klárar umdæmisár sitt á umdæmisþinginu sem verður haldið á Akureyri dagana 21.- 22. september. Þar verða fulltrúar allra Kiwanisklúbba í umdæminu Ísland-Færeyjar og meirihluti Ós félaga með mökum sínum á þingi.
Starfsemi Óss hefur ávallt verið kraftmikil. Helstu fjáraflanir eru eign og rekstur auglýsingaskiltis hér í bæ, páskaeggjabingó, jólatréssala og Groddaveisla. Meðal árlega verka Ós er Kiwanis hjálma afhending. Árið 1991 byrjaði Ós á því verkefni, en frá 2003 hefur það verið landsverkefni með Hjálmanefnd í samstarfi við Eimskip.
Klúbburinn veitir árlega fjármuni til góðra málefna í sýslunni og gegnum Styrktarsjóði umdæmisins og Kiwanis Children Foundation sem er í samstarfi við UNICEF að útrýma joðskorti og stífkrampa í heiminum.
Í fyrirrúmi er ávallt kjörorðið börnin fyrst og fremst og ávallt er reynt að hafa styrkveitingar klúbbsins tengdar þeim kjörorðum.
Þótt langt sé í næstu klúbba hefur okkur tekist að lifa nokkuð bærilegu lífi, stjórnarmenn hitta aðra félaga einu sinni til tvisvar á ári.
Kiwanisklúbburinn Ós gerðist móðurklúbbur Viðeyjar, klúbbs sem stofnaður var í Reykjavík og voru allmargir brottfluttir Hornfirðingar í honum.
Árið 2011 var 41. umdæmisþing íslenska umdæmisins haldið á Hornafirði og heppnaðist það vel í alla staði. Ós félagar fengu miklar þakkir fyrir, en mestar þakkir á þó skilið undirbúningsnefnd þingsins sem vann að undirbúningi þess í hartnær eitt ár. Sagt er að að halda umdæmisþing geti gert útaf við klúbb en Ósmenn fundu ekki fyrir neinu slíku. Þeir halda bara áfram veginn.
Í 30 ára sögu klúbbsins er ekki hægt að láta hjá líða að minnast á einstaka hæfileika klúbbfélaga eins og til dæmis í fótbolta á útihátíðum klúbbsins, einstaka ferðagleði þeirra í þágu Kiwanishreyfingarinnar og eru til dæmis þrír félagar nýkomnir frá því að vera á Heimsþingi Kiwanis Intenational og Kiwanis Evrópu á KI-EF þingi í París Frakklandi í júlí.
Félagar í Ós munu fjölmenna á umdæmisþingið á Akureyri, enda er þetta þing með okkar fyrsta umdæmisstjóra og umdæmisritara sem hafa gengt þeim störfum áður fyrir umdæmið. En það eru félagarnir Haukur og Sigurður Einar.
Núna eru 30 félagar skráðir í klúbbinn og flestir vel virkir. Bæst hafa sex nýir félagar á þessu starfsári en einn hefur hætt. Allmargir félagar eru starfandi sjómenn og hefur það auðvitað áhrif á mætingu á fundi, en eins og dæmin sanna þá hefur það ekki haft áhrif á getu klúbbsins til góðra verka.
Hér hefur nú verið farið í örfáum orðum yfir starfsemi Kiwanisklúbbsins Óss. Vonandi verður starfsemin áfram gefandi og skemmtileg og eru nýir félagar eru ávallt velkomnir í klúbbinn.

Ingvar Snæbjörnsson
forseti Kiwanisklúbbsins Óss