
Innilegar þakkir fyrir það traust sem þið sýnduð okkur, frambjóðendum Framsóknar og stuðningsmanna þeirra í sveitarstjórnarkosningunum hér í Sveitarfélaginu Hornafirði. Kærar þakkir til allra þeirra sem tóku þátt og lögðu sitt af mörkum í umræðu um framtíðina. Þessi mikli stuðningur hvetur okkur enn frekar áfram í vinnu að betra samfélagi. Við þökkum jafnframt öðrum framboðum fyrir skemmtilega og málefnalega kosningabaráttu.
Áskoranirnar sem við stöndum frammi fyrir eru margvíslegar en tækifærin fjölmörg. Eftir samtöl við íbúa er ljóst að nokkur lykilmál standa upp úr hvar sem komið er í okkar víðfeðma sveitarfélagi. Lækkun álagna, markviss uppbygging innviða, fyrirsjáanleiki til framtíðar, aðgengi að velferðarþjónustu óháð búsetu og enn frekari efling skólastarfs eru dæmi um þetta.
Við lítum til framtíðar með bjartsýni að leiðarljósi. Við hlökkum til að halda áfram samtalinu og leita leiða til að bæta samfélagið.
Fyrir hönd frambjóðenda Framsóknar og stuðningsmanna þeirra þökkum við fyrir góðan stuðning og heitum því að hafa heiðarleika, samvinnu og hagsmuni íbúa að leiðarljósi í öllum okkar störfum. Við munum leggja okkur fram um að vinna af ábyrgð, hlusta á ólík sjónarmið og standa vörð um framfarir í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Aðal- og varamenn Framsóknar og stuðningsmanna í bæjarstjórn Hornafjarðar 2026-2030
Hjalti Þór Vignisson
Ingibjörg Sveinsdóttir
Björgvin Óskar Sigurjónsson
Kolbrún Þorbjörg Björnsdóttir
Gunnar Ásgeirsson
Finnur Smári Torfason



