Sveitarfélagið Hornafjörður og Vatnajökulsþjóðgarður í samstarf um framtíðarsýn í húsnæðsmálum á Höfn

0
376
Matthildur og Magnús Guðmundsson, fram­kvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs ásamt Ásgerði Gylfadóttur og Auði H. Ingólfsdóttur

Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri og Magnús Guðmundsson, fram­kvæmdastjóri Vatnajökuls­þjóðgarðs skrifuðu undir viljayfirlýsingu á stjórnarfundi þjóðgarðsins sem var haldinn í Hoffelli þriðjudaginn 22. febrúar s.l. Markmið samstarfsyfirlýsingarinnar er að vinna hugmyndavinnu sem miðar að því að bæta skrifstofuaðstöðu hjá starfsfólki þjóðgarðsins á Höfn og að skoðaðir verði möguleikar á því að setja upp gestastofu með áherslu á jöklasýningu í samstarfi beggja aðila og mögulega með aðkomu fjárfesta. Í dag leigir þjóðgarðurinn Gömlubúð og rennur samningurinn út í mars 2023. Húsnæðið hentar illa sem skrifstofuhúsnæði undir starfsfólk Vatnajökulsþjóðgarðs og sýningin í gestastofunni þarfnast endurnýjunar. Starfsmönnum hefur fjölgað jafnt og þétt á Höfn og eru nú 6 starfsmenn með aðstöðu í Gömlubúð og í Nýheimum en í þarfagreiningu þjóðgarðsins kemur fram að væntingar eru um að starfsmannafjöldinn geti farið upp í allt að 10 á næstu árum.
Sveitarfélagið og Vatnajökuls­þjóðgarður hafa átt í góðu samstarfi undanfarin ár og nú síðast kom þjóðgarðurinn að breytingum á húsnæði á Hrollaugsstöðum með fjárframlagið að upphæð 43 m.kr. í formi fyrirframgreiddrar leigu fyrir starfsmannaíbúðir.
Með samstarfsyfirlýsingu eru báðir aðilar að lýsa jákvæðri framtíðarsýn um uppbyggingu þjóðgarðsins í sveitarfélaginu sem leiðir vonandi til þess að metnaðarfull jöklasýning verði sett upp á Höfn og tækifæri fyrir fleiri stofnanir á vegum ríkisins að setja upp skrifstofuaðstöðu.

Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri