Nú styttist óðum í að Leikfélag Hornafjarðar hendi í eina almennilega Söngleikjasprengju í Sindrabæ laugardaginn 21. nóvember!

Auglýsing

Hugmyndin hefur lengi blundað innan leikfélagsins. Okkur langaði að gera eitthvað einfalt, létt og skemmtilegt sem hægt væri að sjóða saman án þess að fara í umfangsmikla leiksýningu. En eins og þeir vita sem þekkja til leikfélagsfólks er orðið einfalt ansi teygjanlegt hugtak. Sérstaklega þegar saman kemur hópur af fólki sem er kannski örlítið of metnaðarfullt fyrir eigin hag! Þá eiga litlar hugmyndir nefnilega til að stækka áður en maður veit af.

Það sem gaf okkur ákveðna hvatningu til að láta verða af þessu verkefni voru þær miklu og löngu tímabæru endurbætur sem gerðar hafa verið á Sindrabæ. Þetta gamla og góða hús, sem svo margir Hornfirðingar bera sterkar taugar til, hefur nú fengið nýtt líf og spennandi möguleika. Við sáum því kjörið tækifæri til að prófa húsið, tæknibúnaðinn og um leið gefa Hornfirðingum tækifæri til að njóta þessa frábæra menningarhúss á skemmtilegan hátt.

En hvað verður svo á boðstólum? Húsið opnað klukkan 20:00 og þá verður hægt að koma sér vel fyrir, kaupa sér drykk og njóta stemningarinnar. Klukkan 21:00 hefst svo sjálf Söngleikjasprengjan með æfðri dagskrá þar sem tónlist úr heimi söngleikjanna fær að njóta sín. Að henni lokinni ætlum við að halda fjörinu áfram með smá partýi og opnum hljóðnema þar sem gestir geta sjálfir látið ljós sitt skína. Gleðin heldur svo áfram til miðnættis.

Við hjá Leikfélagi Hornafjarðar hlökkum mikið til og vonum að Hornfirðingar fjölmenni og eigi með okkur skemmtilega kvöldstund. Og hver veit, kannski verður þetta að einhverju sem við gerum aftur? En við skulum ekki fara að skipuleggja það strax – þetta átti jú bara að vera eitthvað einfalt!

Sjáumst í Sindrabæ 21. nóvember!

Leikfélag Hornafjarðar

Tags: