
Sunnudaginn 10. maí var merkisdagur hjá Skinney-Þinganesi þegar nýr Ásgrímur Halldórsson SF-250 kom til heimahafnar. Óhætt er að segja að heimkoma skipsins hafi vakið mikla athygli meðal bæjarbúa og sjómanna. Fjölmargir lögðu leið sína niður á bryggju þegar skipið kom til hafnar.
Í tilefni heimkomunnar bauð Skinney-Þinganes í opið hús þar sem fólki gafst kostur á að skoða nýja uppsjávarskipið, kynna sér aðstöðuna um borð og fagna þessum stóra áfanga með áhöfn og starfsfólki. Ásgrímur Halldórsson SF-250 er systurskip Hákons ÞH. Skipið var smíðað hjá Karstensens skipasmíðastöðinni í Danmörku og er búið fjölbreyttum og öflugum tæknibúnaði til uppsjávarveiða. Við hönnun þess var meðal annars tekið mið af aðstæðum hér heima, ekki síst innsiglingunni um Hornafjarðarós. Nýja skipið er með minni djúpristu en eldra skip með sama nafni, sem auðveldar siglingar um ósinn.
Um borð er fullkomin tækni og öflugur búnaður, meðal annars aðalvél frá Wärtsilä, fiskleitartæki frá Simrad, siglinga- og fjarskiptabúnaður frá JRC, hliðarskrúfur frá Brunvoll, stýri og stýrisvél frá Kongsberg, afl- og staðsetningarkerfi frá Marport og björgunarbúnaður frá Víking.
Heimkoma Ásgríms Halldórssonar SF-250 markar mikil tímamót fyrir Skinney-Þinganes og sjávarútveginn á Hornafirði. Skipið mun gegna mikilvægu hlutverki í uppsjávarveiðum félagsins næstu ár og var vel við hæfi að bæjarbúum gæfist tækifæri til að koma um borð, skoða skipið og fagna þessum áfanga.







