Nýheimar þekkingarsetur á fundi í Pescara

0
940

 

Nýheimar þekkingarsetur er þátttakandi í verkefninu SUSTAIN IT- Sjálfbærni í ferðaþjónustu – nýsköpun í þjálfun starfsfólks. Þann 29. maí síðastliðinn komu samstarfsaðilar verkefnisins saman í annað skipti, í Pescara- Ítalíu. Komnir voru saman átta þátttökuaðilar frá sex Evrópulöndum, Belgíu, Kýpur, Ítalíu, Íslandi, Írlandi og Spáni.
Verkefnið er fjármagnað af Erasmus+, samstarfsáætlun Evrópusambandsins og er samstarfsverkefni á sviði starfsmenntunar, KA2.
Markmið verkefnisins er að styrkja starfsfólk og fagfólk í sjálfbærri ferðaþjónustu í Evrópu og jafnframt að hlúa að vexti og samkeppnishæfni greinarinnar. Í SUSTAIN IT er markmiðið að þróa hagnýtt og markvisst fræðsluefni sem verður bæði nýtt á hefðbundinn hátt í kennslu og sem verður einnig aðgengilegt sem stafrænt náms- og kennsluefni á vefsíðu verkefnisins.
Á fundinum var farið yfir þá kortlagningu sem unnin hefur verið í vetur á fræðslu og sjálfbærni í ferðaþjónustu í þeim löndum sem taka þátt í verkefninu. Farið var yfir stjórnunar- og kynningarmál innan verkefnisins ásamt því að innihald og uppbygging fræðsluefnisins sem mótað verður í verkefninu var rætt og áframhaldandi vinna skipulögð.
Fyrir frekari upplýsingar um SUSTAIN IT verkefnið má sjá vefsíðu: www.sustainit.eu