Nemendur FAS kynna sér Cittaslow

0
424

Einn þeirra áfanga sem er kenndur í FAS þessa önn heitir Erlend samskipti og í honum eru núna 10 nemendur. Þessi áfangi er hluti af þriggja ára samskiptaverkefni undir merkjum Nordplus. Í verkefninu eru skólar í Finnlandi, Noregi og Íslandi að vinna með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Áherslan þessa önn er á heimsmarkmið 12 sem fjallar um ábyrga neyslu og framleiðslu. Fyrr á önninni hafa nemendur m.a. kynnt sér hvað einstaklingar og fyrirtæki eru að gera til að aðlaga sem best sína starfsemi að ábyrgri neyslu og framleiðslu.
Mánudaginn 12. apríl fór hópurinn í FAS í heimsókn á Djúpavog til að kynna sér Cittaslow en Djúpivogur hefur verið aðili að verkefninu frá 2013. Markmið Cittaslow-hreyfingarinnar sem einnig er kallað hæglætishreyfing er að auka lífsgæði og ánægju fólks með því að veita hnattvæðingu, einsleitni og hraðaáráttu í borgum og bæjum nútímans viðnám og heiðra þess í stað sérstöðu, vitund og sjálfbærni. Og þetta markmið fellur mjög vel að heimsmarkmiði 12 um ábyrga neyslu og framleiðslu. Gréta Mjöll Samúelsdóttir atvinnu- og menningarmálafulltrúi á Djúpavogi tók á móti hópnum, sagði frá tilurð og starfsemi Cittaslow og hvernig Cittaslow tengist inn í daglegt líf á Djúpavogi. Eftir að hafa fengið fræðslu var gengið um bæinn og áhugaverðir staðir skoðaðir. Áður en lagt var af stað heim var snæddur hádegisverður á Djúpavogi. Ferðin gekk í alla staði vel og kom hópurinn reynslunni ríkari heim.
Samkvæmt umsókninni hefðu nemendur í áfanganum átt að vera í Noregi þessa vikuna en eins og allir vita eru ferðalög ekki vænlegur kostur um þessar mundir. Nemendur í verkefninu hafa því nýtt sér tæknina til að vinna saman og eru að vinna saman í smærri hópum að því að búa til veggspjald sem tengist heimsmarkmiði 12. Næsta haust er svo áætlað að hittast í Finnlandi og við vonum svo sannarlega að það gangi eftir.