Leitin að fugli ársins

0
347
Auðnutittlingur Mynd: Eygló Aradóttir.

Fuglavernd hefur hrundið af stað leitinni að Fugli ársins, annað árið í röð.
Kynntir eru til leiks tuttugu fuglar á nýuppfærðri heimasíðu keppninnar, https://fuglarsins.is/, sem m.a. voru tilnefndir af þeim sem tóku þátt í fyrra. Í það skiptið bar heiðlóan sigur úr býtum, vorboðinn okkar ljúfi.
Á heimasíðu keppninnar má sjá þá fugla sem eru í forvali: https://fuglarsins.is/. Kynntu þér keppendur og taktu þátt með því að velja þann fugl sem þú vilt sjá keppa um titilinn Fugl ársins 2022 – fimm fuglar komast pottþétt áfram. Forvalið fer fram rafrænt dagana 10.-15. ágúst á vefsíðu keppninnar.
Úrslitakosningin um Fugl ársins 2022 fer svo fram á https://fuglarsins.is/ dagana 5.- 12. september og verður sigurvegari ársins kynntur þann 16. september á Degi íslenskrar náttúru.
Endilega deildu áfram, njóttu vel og góða skemmtun!
Tilgangur keppninnar er að vekja athygli á stöðu fugla og fuglaverndarmála á Íslandi, afla nýrra Fuglaverndarfélaga og styrktaraðila en ekki síst að skemmta og fræða.
Nánari upplýsingar gefur Brynja Davíðsdóttir verkefnastjóri hjá Fuglavernd: fuglarsins@fuglavernd.is og í síma 8447633.

Toppskarfur. Mynd: Sveinn Jónsson