Leiklistarstarfsemi sumarið 2022 og götuleikhús

0
432

Þeir Hornfirðingar sem komnir eru til vits og ára muna eflaust eftir litskrúðugu götuleikhúsi sem opnun á okkar ástkæru Humarhátíð. Skrautlega klæddir einstaklingar, spúandi eldi í allar átti og sumir jafnvel á stultum! Allskonar skemmtilegar fígúrur svo ekki sé talað um margra metra langa drekann sem hlykktist um götur bæjarins. Flögg og skraut, englar svífandi í óróa hátt yfir mannfjöldanum og brjálaðir trúðar með innkaupakerrur hlaupandi útum allt. Andlitsmáluð brosandi börn dragandi kassabíla á eftir gömlum ökutækjum og tónlistarfólki bæjarins að leika og syngja á húsþökum bæjarins. Já svona var einu sinni árlegur viðburður sem þáverandi sjálfboðaliðar leikfélagsins keyrðu áfram.
Í tilefni að 60 ára afmæli Leikfélags Hornafjarðar, viljum við endurvekja götuleikhúsið í samstarfi við Humarhátíðarnefnd og hefja Humarhátíð með pomp og prakt.
Til að aðstoða við þessa framkvæmd hefur leikfélagið fengið Smáleikhúsið til liðs við sig.Smáleikhúsið samanstendur af Hornfirðingum og sviðshöfundinum Aroni Martin Ásgerðarsyni og leikaranum Elísabetu Skagfjörð. Smáleikhúsið var stofnað árið 2017 með það að markmiði að efla listkennslu fyrir börn og unglinga úti á landi. Smáleikhúsið leggur áherslu á að gefa ungu fólki öruggt rými til sköpunnar óháð kyni, kynþáttar og þjóðernis ásamt því að kynna þau fyrir hinum ýmsu aðferðum leikhússins og efla þannig bæði víðsýni og sjálfstæði ungs fólks til listsköpunnar.

Aron Martin Ásgerðarson

Aron Martin útskrifaðist sem sviðshöfundur frá Listaháskóla Íslands árið 2019 og hefur haft leikhúsvinnu og kvikmyndagerð sem aðalstarf frá árinu 2016. Hann hefur meðal annars leikstýrt Stúdentaleikhúsinu, Menntaskóla Akureyrar og Menntaskóla Reykjavíkur. Aron hefur mikla reynslu sem leikmyndahönnuður og hefur síðustu misseri séð um að hanna leikmyndir fyrir hin ýmsu sjónvarps- og kvikmyndaverkefni. Aron spilar einnig með rafpönkdúettinum HEXHEXHEX og hefur mikla reynslu af tónsmíðum og hljóðfæraleik.

Elísabet Skagfjörð

Elísabet útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2018. Áður en hún hóf nám við LHÍ hafði hún starfað sem leikari, dansari og söngvari við Borgarleikhúsið þar sem hún tók þátt í ýmsum stórum söngleikjum þar á meðal Mary Poppins og Billy Elliot. Hún lærði klassískan ballett og nútímalistdans við Listdansskóla Íslands í 4 ár. Elísabet hefur kennt börnum og unglingum leiklist, söng og dans frá árinu 2011 hjá Leikfélagi Mosfellssveitar, Sönglist og dansskóla Birnu Björns ásamt því að hafa unnið við framhaldsskólasýningar hjá Menntaskólanum á Akureyri og Menntaskólanum við Sund. Elísabet sá einnig um Götuleikhúsið í Kópavogi í 3 ár.
Börnum og ungmennum gefst því kostur á að skrá sig á sérstakt götuleikhúsnámskeið. Þar mun Smáleikhúsið leiðbeina þeim í undirbúningi að umræddu götuleikhúsi en til að gera slíka framkvæmd sem glæsilegasta þá skiptir máli að fá nóg af áhugasömu fólki til að taka þátt. Hvort sem það hefur áhuga á að leika, gera búninga, leikmynd eða tónlist. Öll sem vilja skapa eru velkomin.
Smáleikhúsið mun einnig standa fyrir leiklistarnámskeiði fyrir börn og unglinga á aldrinum 9 – 12 ára og verður afraksturinn sýndur á Humarhátíð.

9 – 12 ára = (10:00 – 11:30) Verð: 15.000 ISK
13 ára+ Götuleikhús = (16:30 – 19:30) FRÍTT

Öll áhugasöm sendið póst á smaleikhusid@gmail.com

Mikilvægt er að athuga að götuleikhús er jafn fjölbreytt og fólkið sem tekur þátt í því. Því viljum við hvetja öll sem hafa áhuga á að taka þátt og/eða starfa í kringum götuleikhúsið að hafa samband við okkur óháð aldri.

Leikfélag Hornafjarðar og Smáleikhúsið