Fram undan er spennandi tími. Ég hef á síðustu fjórum árum safnað dýrmætri reynslu af setu í bæjarstjórn. Starfið hefur verið krefjandi, lærdómsríkt og ekki síst skemmtilegt. Því hef ég ákveðið að bjóða mig aftur fram í komandi kosningum. Ég sækist eftir 1.–2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Ég hvet íbúa sveitarfélagsins til að bjóða sig fram á lista eða til annarra starfa innan flokksins og hafa þannig áhrif á sitt nærumhverfi.




