Blaut- og sótthreinsiklútar stífla lagnirnar, hættum að henda þeim í klósettið! Við bendum sérstaklega á að þótt sumir framleiðendur taki fram á umbúðunum að blautþurrkurnar þeirra megi fara í klósettið þá er það ekki rétt.
Við viljum biðja íbúa að passa að nota ekki klósettin sem ruslafötur. Allir blautklútar eiga heima í tunnu fyrir almennt sorp hvort sem þeir eru notaðir á andlit og líkama eða til þrifa og sótthreinsunar.
Starfsmenn hafa orðið varir við aukið magn blautklúta í fráveitunni á Höfn og í Nesjum en slíkt skapar álag í kerfinu og getur valdið stíflum og/eða bilunum á dælum og öðrum búnaði.
Stöndum saman um að halda innviðunum okkar í góðu lagi.