Margt smátt gerir eitt stórt

Auglýsing

Í gegnum árin hafa íbúar sýslunnar þurft að takast á við allskonar áskoranir. Formæður okkar og forfeður börðust við náttúruöflin til að búa til það líf sem við nú lifum við.
Saga okkar og menning er einstök á sinn hátt og aðdáunarvert hversu þrautseigir Austur-Skaftfellingar eru.
Vatnajökulsþjóðgarður var á sínum tíma m.a stofnaður til að efla atvinnulíf og reyna snúa neikvæðri byggðaþróun yfir í jákvæða. Það er þetta lykilatriði sem varð til þess að einhver sátt var um stofnun Þjóðgarðsins sem átti að efla byggð og atvinnulíf á svæðinu. Á sumarmánuðum framkvæmdu stjórnvöld markaðskönnun þar sem óskað var eftir hugmyndum að aðkomu einkaaðila að uppbyggingu innviða við Jökulsárlón. 20 fyrirtæki svöruðu könnuninni og kynntu sínar hugmyndir um uppbyggingu við Jökulsárlón. Af þeim voru 11 fyrirtæki sem teljast geta verið heima fyrirtæki og 9 fyrirtæki sem teljast vera mjög stórir aðilar úr Reykjavík.
Nú hefur Ferðamálafélag Austur- Skaftafellssýslu leitt vinnu við að stofna fasteignafélag í eigu Austur-Skaftfellinga og viljum við bjóða öllum þeim sem hafa áhuga á að verða hluthafar að óstofnuðu fasteignafélagi og fá frekari upplýsingar um málið að hafa samband við Ferðamálafélag Austur-Skaftafellssýslu tölvupóstfang faskstjorn@gmail.com eða hafa beint samband við stjórnarmenn Ferðamálafélagsins.
Við teljum að þarna sé gott fjárfestingartækifæri en ekki síður tækifæri til að sýna hversu öfluga samstöðu við heimaaðilar getum sýnt fram á með því að snúa bökum saman og eiga sameiginlegt félag sem mun sjá um innviðauppbyggingu á Jökulsárlóni. Nú þegar hafa safnast loforð að upphæð 1,3 milljörðum króna og vonumst við til að safna a.m.k 2 milljörðum í hlutafjárloforð með ykkar framlagi.
Stofnfundur Fasteignafélagsins verður haldinn núna í nóvember.
Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður til að leitast við að styrkja byggð og atvinnustarfsemi í nágrenni þjóðgarðsins, m.a með því að hvetja til sjálfbærrar nýtingar gæða svæðisins. Vernda náttúru svæðisins, svo sem landslag, lífríki, jarðmyndanir og menningarminjar. Gefa almenningi kost á að kynnast og njóta náttúru og sögu svæðisins. Stuðla að rannsóknum á svæðinu, fræða um það og ýta undir aukinn skilning almennings á gæðum og sérstöðu svæðisins. Nú hafa virkilega stórir aðilar sýnt áhuga á að byggja upp innviði við Jökulsárlón, það má aldrei gerast að aðrir en heimaaðilar stjórni og stýri sínu nærumhverfi. Það er enginn betur til þess fallinn en við sjálf að uppfylla megin markmið Vatnajökulsþjóðgarðs og vinna þar með í leiðinni að öflugri jákvæðri byggðaþróun í sýslunni okkar.

Með vinsemd og virðingu.
Stjórn Ferðamálafélags Austur-
Skaftafellssýslu
Haukur Ingi Einarsson
Tinna Rut Sigurðardóttir
Ágúst Elvarsson
Óskar Arason
Laufey Guðmundsdóttir