K100 í beinni frá Höfn

0
1170

Dagskrá K100 á morgun, föstudaginn 3. júlí verður öll úr útsendingarhjólhýsi K100 á besta stað í bænum fyrir utan sundlaug Hafnar. Þangað munu koma ýmsir góðir gestir úr bænum.

Útvarpsstöðin K100 ætlar að kynnast landinu betur í sumar og kynna þá stórkostlegu staði sem eru í boði fyrir landsmenn innanlands. Á morgun, 3. júlí, verður öll dagskráin í beinni frá Höfn í Hornafirði. Stjórnendur útvarpsþáttanna Ísland vaknar og Síðdegisþáttarins elska Ísland og ætla að gerast ferðamenn í eigin landi og ferðast um landið með hlustendum í sumar, en næsti áfangastaður K100 er Höfn í Hornafirði.

Dagskrá K100 föstudaginn 3. júlí verður öll úr útsendingarhjólhýsi K100 á besta stað í bænum fyrir utan sundlaug Hafnar.Þangað munu koma ýmsir góðir gestir úr bænum.

Morgunþáttur stöðvarinnar, Ísland vaknar, með þau Kristínu Sif, Ásgeir Pál og Jón Axel innanborðs, hefst stundvíslega klukkan sex að morgni. Auðun Georg verður með fréttirnar eins og venjulega og Siggi Gunnars og Logi Bergmann í Síðdegisþættinum munu skoða hvað gerir Höfn að áhugaverðum stað og eftirsóknarverðum til að heimsækja og búa á.

Dagurinn verður vel nýttur

Siggi Gunnars hlakkar til að heimsækja Höfn en hann vera sérstaklega spenntur að kynnast matarmenningunni í bænum sem oft er kallaður Humarbærinn.

„Það verður gaman að koma á Höfn en þangað hef ég ekki komið í mörg ár, áður en túristabyltingin hófst hér á landi, svo það verður spennandi að sjá alla uppbygginguna sem hefur átt sér stað þar í ferðamennsku. Mér skilst að matarmenningin sé efst á lista yfir það sem maður þarf að kynna sér á staðnum svo ég er spenntur að smakka allan góða matinn þarna,“ segir hann kátur í bragði.

„Einn af mínum bestu vinum er frá Höfn svo ég er búinn að fá fullt af ráðum frá honum varðandi það sem ég þarf að sjá svo dagurinn fram að útsendingunni verður vel nýttur. Þar ætlum við m.a. að tala um „slow tourism“ sem er fyrirbæri sem ég hef ekki heyrt talað um áður!“

K100 sendir út á 106,5 á Höfn

Útsendingasvæði útvarpsstöðvarinnar K100 stækkar á meðan útsendingu stendur á föstudag frá Höfn í Hornafirði á morgun, föstudag. „Við á K100 erum mjög spennt fyrir því að stækka útsendingarsvæðið okkar þannig að við náumst á Höfn,“ segir Siggi Gunnars, dagskrárstjóri stöðvarinnar. „Fyrsti liðurinn í því verður að við verðum með tilraunaútsendingu á morgun, föstudag á FM 106,5 og vonumst við til að íbúar Höfn taki vel í það.“