íFormi

0
1322
Gunnar Örn, Björgvin og Kristján sigruðu í 3 á 3 körfubolta

Um liðna helgi fór fram ÍFormi mótið hér á Höfn. Þar stóð fólki 35 ára eða eldri til boða að spreyta sig í hinum ýmsu keppnisgreinum. Í boði voru frjálsar, knattspyrna, körfubolti, badminton, golf, sund og utanvega hlaup.
Þessi viðburður var mjög vinsæll hér á árum áður og það er ákveðið frumkvöðlastarf að endurvekja þetta mót og búa til stemningu aftur fyrir því hérna á Hornafirði. Í mörgum greinum má segja að það hafi verið „Akoniti“ sigur þar sem sigurinn var að mæta þrátt fyrir erfið veðurskilyrði og aðrar utanaðkomandi aðstæður. Því miður náðist ekki þátttaka í knattspyrnu en sigurvegarar voru krýndir í öðrum greinum. Á Ólympíuleikunum til forna þá var „Akoniti“ sigur merki um mikla sæmd og virðingu þar sem aðrir keppendur höfðu dregið sig úr keppni og þorðu ekki að mæta sigurvegaranum þar sem hann bar af í viðkomandi keppnisgrein og átti það við um nokkrar greinar að þessu sinni hjá okkur. Allir keppendur stóðu sig hins vegar vel og viljum við þakka þeim fyrir þátttökuna. Þessi viðburður fer í reynslubankann hjá okkur og til stendur að hafa keppnina að ári og vonandi verða þá fleiri sem sjá sér fært að mæta til leiks og jafnvel hefja æfingar yfir sumarið og stunda reglulega hreyfingu sem er aðalmarkmið þessa viðburðar.

Hér fyrir neðan má sjá sigurvegara úr hverri grein.

100m hlaup kk
Gunnar Örn Reynisson
Tími 15,11 sek
Kúluvarp kk
Björgvin Erlendsson
Lengd 9,96m
Langstökk kk
Gunnar Örn Reynisson
Lengd 3,90m
Boðhlaup kk
Gunnar Örn Reynisson, Kristján Ebenezerson, Björgvin Erlendsson, Kristján Hauksson
Tími 1,17 mín
Golf
Guðjón Björnsson
32 punktar
Fyrir Horn
Jóhann Hilmar
75 mín
50 m bringusund kvk
Hulda Laxdal Hauksdóttir
50m skriðsund kvk
Hulda Laxdal Hauksdóttir
Badminton
Jakub Biernat
Sigurborg Jóna Björnsdóttir
Körfubolti kk
Björgvin Erlendsson, Gunnar Örn Reynisson og Kristján Hauksson