íFormi endurvakið

0
655

íFormi mótið verður haldið laugardaginn 2. október. Keppt verður í fjölbreyttum íþróttum og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. íFormi er fyrir einstaklinga 35 ára og eldri, og er miðað við fæðingaár. Þátttökugjald er 2.500 kr. í mótið og geta keppendur tekið þátt í eins mörgum greinum og þeir treysta sér til. Hér fyrir neðan kemur dagskrá fyrir mótið og upplýsingar fyrir skráningu.
08:00 Golf
Spilaðar verða 18 holur á Silfurnesvelli. Skráning fer fram í gegnum golfbox. Einnig er hægt að senda tölvupóst til að skrá sig.
10:00 Hlaupið fyrir Horn
Hlaupið er frá Papósi og að Litla Horni. Vegalengdin er 10km. Reynt verður að sameina í bíla til að flytja keppendur frá Litla Horni.
12:00 4 á 4 fótboltamót
Keppt verður 4 á 4 á battavellinum við hliðina á íþróttahúsinu. Við hvetjum keppendur til að búa til lið. Annars er hægt að skrá sig og greinarstjóri finnur lið fyrir viðkomandi.
13:00 3 á 3 körfuboltamót
Keppt verður 3 á 3 inni í íþróttahúsinu. Við hvetjum keppendur til að búa til lið. Annars er hægt að skrá sig og greinarstjóri finnur lið fyrir viðkomandi.
14:00 Sund
Keppnisgreinar verða auglýstar síðar.
15:00 Frjálsar íþróttir
Keppt verður í 100m, kúluvarpi, langstökki og boðhlaupi. Keppnin fer fram á íþróttasvæðinu.
16:00 Badminton
Keppt verður í einliðaleik.

Ennþá er hægt að bæta við keppnisgreinum. Ef einhvern hefur áhuga á að taka að sér og sjá um keppnisgrein er það minnsta mál að hafa samband við Jóhann Berg.

Keppendur ganga frá greiðslu í gegnum Nóra, https://hornafjordur.felog.is/. Skráning í keppnisgreinar skal senda á johannbergur@umfsindri.is, fram þarf að koma nafn og greinar sem á að keppa í.