Hvernig dreg ég úr plastnotkun?

0
1444

Umhverfis Suður­land er sunn­lenskt átaks­verkefni sem snýst um að auka meðvitund Sunnlendinga á umhverfismálum með von um góða þátttöku í hinum ýmsu viðburðum tengdum málefninu.
Nú er plast mikið í umfjölluninni og margir sem kjósa að draga úr plastnoktun. Hér verður stiklað á stóru um nokkur atriði sem kjörið er að endurskoða til að draga úr notkun plasts á venjulegu heimili.
Einnota plastið er það sem við ættum að byrja á að draga úr. Mikilvægt er að flokka allt plast sem fellur til á heimilinu og á Suðurlandi taka öll sveitarfélög við plasti í flokkun.
Nokkur dæmi um hluti sem má auðveldlega skipta út fyrir margnota á heimilinu:
Plaströr: Einnota plaströr má skipta út fyrir fjölnota stálrör og bambusrör.
Pokar: Plastpokum má skipta út fyrir fjölnota innkaupapoka, nestispoka, grænmetisnetapoka o.fl.
Ruslið: Ef allt sem til fellur á heimlinu er flokkað í þaula má nánast komast hjá því að vera með „venjulegt rusl“. Það er jafnvel hægt að nota heimagerða pappa-poka úr gömlum dagblöðum í tunnuna, en á meðan verið er að vinna sig á það stig má nota niðurbrjótanlega maíspoka sem lifa ekki í mörghundruð ár eins og plastið.
Plastfilma: Plastfilmu má skipta út fyrir bývaxdúka sem hægt er að fá í ýmsum stærðum og gerðum eða jafnvel útbúa sjálfur.
Sjampóbrúsinn: Í dag fást ýmsar tegundir af sjampóstykkjum sem má skipta út fyrir sjampó brúsann. Sjampóstykki má t.d. finna í netverslunum Visvera, Mistur og Mena svo eitthvað sé nefnt.
Tannburstinn: Plast tannbursta má skipta út fyrir bambus tannbursta sem brotnar niður eftir notkun.
Enn fleiri ráð má finna inná á heimasíðu verkefnisins www.umhverfissudurland/fraedsla/topp30.

#umhverfissudurland