Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Sveitarfélaginu Hornafirði hafa undirritað málefnasamning um samstarf á komandi kjörtímabili 2026 til 2030. Markmið samstarfsins er að efla búsetuskilyrði, styrkja samfélagið og byggja áfram upp öfluga þjónustu við íbúa sveitarfélagsins.

Auglýsing

Samkvæmt samkomulaginu mun Hjalti Þór Vignisson taka við embætti bæjarstjóra, Gauti Árnason verður formaður bæjarráðs og Ingibjörg Sveinsdóttir forseti bæjarstjórnar.

Í málefnasamningnum kemur fram að áhersla verði lögð á hag fjölskyldna, lækkun álaga, uppbyggingu innviða og bætta þjónustu um allt sveitarfélagið. Þá verður lögð sérstök áhersla á jafnræði íbúa óháð búsetu og að mæta áframhaldandi fólksfjölgun með markvissri uppbyggingu bæði í þéttbýli og dreifbýli.

Í samtali við Eystrahorn sagði Hjalti að það væri nóg framundan:

„Ég hlakka mikið til næstu fjögurra ára og efst í mínum huga er þakklæti fyrir að vera treyst fyrir því verkefni að verma stól bæjarstjóra á komandi kjörtímabili. Framundan eru spennandi verkefni sem ég tel að geti styrkt samfélagið okkar og við munum leitast eftir breiðri sátt við önnur framboð um þau verkefni“ segir Hjalti.

Gauti segir samstarfið byggja á góðum grunni undanfarinna ára.

„Við erum spennt fyrir samstarfinu og ætlum áfram að byggja á því góða starfi sem átt hefur sér stað hér undanfarin kjörtímabil. Við ætlum að efla hag fjölskyldna, styrkja atvinnulífið og standa vörð um hagsmuni íbúa gagnvart hinu opinbera,“ segir Gauti.

Fræðslu- og frístundamál verða áfram í forgangi samkvæmt samkomulaginu, meðal annars áframhaldandi uppbygging leik-, grunn- og framhaldsskóla ásamt bættri aðstöðu fyrir íþrótta- og frístundastarf. Þá verður unnið að því að bæta aðgengi að þjónustu í velferðarmálum, efla lýðheilsu og tryggja sambærilega þjónustu fyrir íbúa í dreifbýli.

Flokkarnir leggja einnig áherslu á samþættingu umhverfis-, atvinnu- og menningarmála með það að markmiði að skapa skýrari framtíðarsýn fyrir sveitarfélagið. Þá verður lögð áhersla á öflugt samstarf við ríkisvaldið um meðal annars samgöngur, heilbrigðisþjónustu og málefni tengd starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs.

Markmið nýs meirihluta er samkvæmt samkomulaginu að gera Sveitarfélagið Hornafjörð að enn betri stað til að búa á og eftirsóknarverðum valkosti fyrir fólk sem vill setjast þar að.

Málefnsamningur:

Tags: