Framkvæmdum við Hoffellsárbrú á Hornafjarðarvegi (987), sem áttu að fara fram næstu daga, hefur verið frestað vegna veðurs. Stefnt er að því að framkvæmdir fari fram vikuna 5. til 9. október.

Auglýsing

Brúnni verður lokað allri umferð meðan á framkvæmdum stendur og verður því ekki hægt að aka Hornafjarðarveg þessa daga. Vegfarendur þurfa þess í stað að aka um nýjan Hringveg um Hornafjörð.

Ekkert veggjald verður tekið af umferð um Hringveg á meðan Hoffellsárbrú er lokuð.

Um er að ræða nauðsynlegar viðhaldsaðgerðir á einbreiðri brú yfir Hoffellsá sem ekki var hægt að ráðast í meðan Hornafjarðarvegur gegndi hlutverki Hringvegar.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og sýna þolinmæði meðan á framkvæmdum stendur.

Samantekt úr frétt af vef Vegaerðarinnar.

Tags: