Ársfundur Nýheima

0
679

Ársfundur Nýheima þekkingarseturs var haldinn 13. maí síðastliðinn. Fram kom í máli forstöðumanns og formanns stjórnar að starfsemi setursins gengur vel, rekstrar- og verkefnastaða þess er góð og er framtíðin því björt. Fjórir starfsmenn eru nú starfandi hjá setrinu.
Ársfundi Nýheima var nú í fyrsta sinn streymt á facebook-síðu Nýheima þekkingarseturs og er upptaka fundarins einnig aðgengileg á heimasíðu Nýheima. Auk venjubundinna fundarstarfa voru tvö afar áhugaverð erindi flutt á ársfundinum að þessu sinni. Annars vegar kynnti Dr. Anna Guðrún Edvardsdóttir niðurstöður rannsóknarinnar Staða og hlutverk þekkingarsetra í byggðaþróun. Margir íbúar kannast við rannsókn Önnu Guðrúnar og tóku þátt í íbúakönnun, rýnihópum eða viðtölum síðastliðið vor. Niðurstöður rannsóknarinnar varpa ljósi á þekkingu og væntingu íbúa til þekkingarsetra í sínu samfélagi. Rannsóknin er samstarfsverkefni Nýheima þekkingarseturs, Háskólafélags Suðurlands og Þekkingarnets Þingeyinga og hlaut styrk úr Byggðarannsóknasjóði og Atvinnu- og rannsóknasjóði Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Þá styrkti Mennta- og menningarmálaráðuneytið verkefnið einnig.
Karl Friðriksson hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands flutti erindið Framtíðir – Hlutverk sviðsmyndagreininga í byggðaþróun. Mjög áhugavert erindi um hvernig megi nýta sviðsmyndir til undirbúnings fyrir ólíkar framtíðir.
Starfsemi þekkingarsetursins grundvallast á fjórum stoðum þess, menntun, menningu, nýsköpun og rannsóknum, samstarfi fjölbreyttra aðila, innan og utan Nýheima, og þjónustu við samfélagið. Stoðirnar, samstarfið og samfélagið er það sem ræður för í öllum þeim verkefnum sem Nýheimar þekkingarsetur tekur þátt í. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér fjölbreytt verkefni setursins á síðasta rekstrarári í ársskýrslu sem aðgengileg er á vefsíðu Nýheima (www.nyheimar.is).