Sveitarfélagið Hornafjörður er einstakt að mörgu leyti. Hér höfum við fallega náttúru, jöklar, fjöll og vötn umvefja okkur og gefa óútskýrðan kraft. Kraft sem maður áttar sig ekki á fyrr en hann vantar. Það eru ákveðin lífsgæði fólgin í því að búa á slíkum stað og þá eru ótalin þau gæði sem fylgja því að búa í vel reknu sveitarfélagi, þar sem börn geta fengið leikskólapláss við 12 mánaða aldur, atvinnulíf blómstrar og uppbygging á sér stað svo eitthvað sé nefnt.

Auglýsing

Fasteignamarkaðurinn hefur mikil áhrif á íbúa svæðisins. Lóðir þurfa að vera til taks og eðlileg hreyfing á markaði er mikilvæg. Fasteignamat á að endurspegla virði eigna þó svo að það sé raunin að verðlagsþróun fasteigna hafi áhrif á eignir nágrannana. Þetta mat er síðan grunnurinn að því hvernig stór hluti gjalda leggst á heimilin, fasteignagjöld skiptast niður í fasteignaskatt, fráveitugjald, vatnsgjald og sorpgjald en þau eru öll ákveðinn hluti fasteignamats nema sorpgjaldið.

Stöðvum sjálfvirkar hækkanir fasteignaskattsins

Tvisvar á þessu kjörtímabili hefur fasteignaskattsprósentan verið lækkuð en vegna hærra fasteignamats hefur lækkunin ekki skilað sér sem skyldi til íbúa. Í janúar mældist verðbólga 4,4% en fasteignamat íbúðarhúsnæðis á svæðinu hækkaði um 10,2%. Við sjáum að ef ekki er gripið til aðgerða er hækkandi fasteignamat fljótt að éta upp boðaðar lækkanir.

Til að stemma stigum við þessu og skapa fyrirsjáanleika í rekstri heimilana ætlum við að koma í veg fyrir að fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði hækki umfram verðlag á kjörtímabilinu. Við lækkum álagningarhlutfall skattsins þegar fasteignamat hækkar, þannig verða skilyrði fyrir stöðugleika og hækkun fasteignamats færist ekki af fullum þunga inn í heimilisbókhaldið.

Fráveitugjöld til framtíðar

Rekstur sveitarfélagsins skiptist í A og B hluta, í B hluta eru reknar tengdar einingar svo sem vatns- og fráveita. Undanfarið hefur verið fjárfest mikið í fráveitukerfinu og því hafa gjöldin verið há miðað við nágrannasveitarfélög. Þau hafa samt ekki dugað fyrir framkvæmdunum og hefur A hlutinn staðið straum af þessari uppbyggingu, skulda Hornafjarðarveitur honum nú um 300 milljónir vegna þessa.

Endurskoðendur sveitarfélagsins hafa lagt áherslu á að greiða þessa skuld til baka þannig verðmæti A hluta verði skilað. Á sama tíma er ákall um lækkun fráveitugjalda en það er ekki nóg að hægja á endurgreiðslum. Með ábyrgri greiðsluáætlun til 20 ára hyggjumst við tryggja verðmæti Aðalsjóðs samhliða lækkun fráveitugjalda úr 0,34% niður í 0,26%. Létta álögum á íbúa nú og húsnæðiseigendur framtíðarinnar taki eðlilegan þátt í fjárfestingunni.

Árangur áfram – fyrir heimilin

Við höfum fjárfest mikið í innviðum á núverandi kjörtímabili, staða fráveitukerfisins er til fyrirmyndar miðað við mörg önnur sveitarfélög. Leiruhverfið er fullnýtt og undirvinna fyrir nýtt íbúasvæði er þegar hafin. Hornafjörður er eftirsóknarverður staður til að búa á og þannig viljum við hafa það. Með auknum fyrirsjáanleika og lægri álögum á íbúa ætlum við að gera gott samfélag enn betra.

Ásta Steinunn Eiríksdóttir
3. sæti XD Hornafirði

Tags: