
Nú þegar nýr hluti Skjólgarðs hefur verið vígður er vel við hæfi að setjast niður með tveimur starfsmönnum sem eiga að baki einstaklega langan starfsaldur þar. Þær Elísabet Einarsdóttir og Ólöf Óladóttir, eða Beta og Óla, eiga hvorki meira né minna en rúmlega 45 ára starfsaldur að baki en báðar hófu þær störf á Skjólgarði árið 1981. Þær hafa því unnið á Skjólgarði í þrenns konar húsakynnum ásamt því að hafa hjúkrað og unnið með þremur kynslóðum.
Fyrsta spurning mín var því hvort allt væri þegar þrennt væri. Vinkonurnar hlógu bara og sögðu að það væri aldrei að vita nema þær næðu að vinna með fjórða ættliðnum næsta sumar. Þrátt fyrir að þær séu báðar komnar formlega á eftirlaunaaldur eru þær hvergi nærri hættar að vinna.
Beta og Óla kynntust í Sjúkraliðaskólanum í Reykjavík og hafa meira og minna fylgst að síðan. Báðar fluttu þær austur á Höfn til að elta kærastana. Beta rifjar upp hvernig Óla kynnti hana fyrir kærastanum: „Ólöf kom alveg á föstu suður í skóla, þannig að ég kalla hana bara góða að fara í skólann. Svo kynntumst við tvær í skólanum og svo fórum við bara á djammið og þar var fullt af Hornfirðingum og þar kynntist ég Alla.“


Eftir útskrift í janúar 1981 fluttust þær báðar austur og hófu störf á Skjólgarði þá um vorið.
Á þessum tíma var Skjólgarður í húsunum við Hvannabraut 3–5 og aðbúnaðurinn töluvert annar en sá sem við þekkjum í dag. Húsin tvö voru ekki tengd saman og þurfti því starfsfólkið að fara út til að komast á milli þeirra. Í öðru húsinu voru herbergi, stofa og lítið eldhús þar sem meðal annars var eldaður grautur fyrir heimilisfólkið, sem borðaði saman í stofunni. Í hinu húsinu voru herbergi fyrir þau sem voru hressari og þar var einnig matsalur.
Herbergin voru lítil og yfirleitt tveir í hverju herbergi. Þegar Skjólgarður flutti á Víkurbraut árið 1996 fannst þeim því breytingin gríðarleg, þó enn væru tveir í herbergi. Það segir sitt um hversu mikið tíðarandinn hefur breyst. Í dag þykir tveggja manna herbergi tæplega ásættanlegt á hjúkrunarheimili og í nýjasta hluta Skjólgarðs eru eingöngu einstaklingsherbergi.


þær segja það sérstakt áhugamál að ná mynd af sér með frægum
„Á þessum tíma voru koppar undir flestum rúmum,“ rifja þær upp og bæta við: „Það átti hver sinn kopp. Ef rétta sprungan var ekki í koppnum þá átti hann ekki koppinn.“ Koppunum var reglulega komið fyrir í einum stórum suðupotti og þeir þvegnir þannig. Smátt og smátt lagðist þetta af en fyrstu starfsárin voru þær stöllur meðal annars að hjúkra fólki sem hafði fæðst undir lok 19. aldar og alist upp við allt aðrar aðstæður, meðal annars í torfbæjum. Í dag sinna þær kynslóð sem hefur alist upp við allt annan veruleika og kann jafnvel vel á ýmis snjalltæki. Á þessum 45 árum hafa þær því séð ótrúlegar breytingar, þó þær séu sammála um að þegar öllu er á botninn hvolft sé manneskjan sjálf alltaf sú sama.
Smátt og smátt var aðstaðan á Hvannabraut byggð upp, húsin tengd saman og fleiri byggingar teknar undir starfsemina. „Við kölluðum það útihúsin,“ rifja þær upp.
Ég spyr þær hvort starfið hafi verið ólíkt því sem það er í dag. Þær segja að fólk hafi almennt komið mun fyrr inn á Skjólgarð en nú. „Það hefði getað búið heima miklu lengur ef það hefði verið í boði,“ segja þær og vísa þar meðal annars til þess að heimaþjónusta var ekki komin til sögunnar með sama hætti og síðar varð.
Á þessum tíma voru það nær eingöngu konur sem störfuðu við umönnunina og vinnufatnaðurinn var sömuleiðis allt annar en í dag. Fyrst voru það hvítir sloppar og nælonsokkabuxur, síðar hvítar buxur og sloppar. Í dag er hins vegar lögð áhersla á að umhverfið sé sem heimilislegast og starfsfólk klæðist því eigin fötum.
Smátt og smátt fóru karlar einnig að sinna störfum á Skjólgarði, þó þeir hafi lengst af verið fáir, og starfsmannahópurinn hefur jafnframt orðið mun fjölbreyttari að uppruna. „Núna eru líka mun fleiri erlendir starfsmenn. Áður voru bara íslenskumælandi starfsmenn,“ segja þær. Það hafi reynt á tungumálakunnáttuna en jafnframt kennt þeim ýmislegt. „Við erum svo gamlar og lélegar í tungumálum en höfum lært heilmikið. Maður er orðinn frakkur að bjarga sér – maður bjargar sér!“
Margt annað í daglegu starfi hefur líka breyst. „Fyrstu 20 árin var líka allt gert frá grunni; slátur á haustin, kæfa, sulta, allt bakað,“ segja þær og það leynir sér ekki að þær hugsa með hlýju til baka til þess tíma.
Þegar þær eru spurðar hvað hafi orðið til þess að þær hafi enst svona lengi á sama vinnustað eru þær fljótar til svars. „Mjög góður vinnustaður,“ segir þær. Starfið sé gefandi, samstarfsfólkið hafi verið gott og þrátt fyrir að ýmislegt hafi gengið á í gegnum árin hafi þær yfirleitt hlakkað til að mæta í vinnuna.
Nú hafa þær báðar minnkað við sig niður í 50% starf, en það virðist ekkert liggja sérstaklega á þeim að hætta. Þær viðurkenna meira að segja að hafa beðið eftir nýja hluta Skjólgarðs. „Mér fannst ég verða að vinna á nýja staðnum,“ segir Beta og Óla tekur undir. Þær sjá fyrir sér að vinna eitthvað áfram, mögulega fram á næsta haust, meðan heilsan leyfir.
Þó starfsævin á Skjólgarði taki einhvern tímann enda verður varla setið auðum höndum. Hugmyndin að Hirðingjunum kviknaði einmitt á kvöldvakt á Skjólgarði árið 2012. Upphaflega var markmiðið að safna fyrir húsgögnum og öðru fyrir Skjólgarð og fyrsta gjöfin voru gluggatjöld í borðstofuna. Fljótlega þurfti þó að færa út kvíarnar og síðan hafa Hirðingjarnir styrkt fjölmörg verkefni í Hornafirði. Um næstu áramót stefnir í að þeir hafi gefið um 50 milljónir króna frá upphafi.
Þegar talið berst að því hvað taki við á næstu árum er ljóst að þær eru hvergi nærri hættar. Betu langar meðal annars að taka þátt í að fegra bæinn en Óla sér jafnvel fyrir sér að fara í göngutúra með leikskólabörnum.
Beta segist varla þora að segja það en lætur svo vaða: „Mig dreymir um að hjálpa krökkunum í sumarvinnunni að gera beðin í bænum fallegri.“ Í spjallinu kviknar því hugmynd að samfélagsverkefni þar sem íbúar taka sig saman um að sinna beðum og ruslatínslu í okkar fallega umhverfi.
„Ætli ég verði ekki bara að fylgja henni,“ segir Óla. „Við höfum alltaf fylgst að,“ svarar Beta.




