Æðarfuglinn minnir okkur á viðkvæmt samspil náttúrunnar

0
155

-listamaður vikunnar Eygló Harðardóttir

Inni á bókasafni Hornafjarðar standa nú bókverk og tveir skjáir með myndböndum sem fletta í gegnum þau. Það er listamaðurinn Eygló Harðardóttir sem bjó til þessar tvær bækur.
„Hugmyndin kviknaði útfrá dagbókum æðarbænda,“ segir Eygló. „Æðarbændur færa í dagbók, dagsetja og skrá mikið magn hagnýtra upplýsinga, gera samanburð, teikna upp, halda bókhald. Dagbókin er þannig hagnýt og mikilvægt rannsóknartæki fyrir bændurna.“
Eygló segir sjónrænu dagbækurnar sem hún gerði ólínulegar og að þær byggi á rýmisupplifunum, litum, takti og túlkunarmöguleikum frekar en staðreyndum. Pappírinn í dagbókunum hefur tilvísun í loftkenndan eiginleika dúnsins. Hann er hvítur og Indígó-blár, handgerður og saumaður í kjölinn. Útlit bókverkanna er þannig „lífrænt” og loftkennt, þau eru án forsíðu og baksíðu, og ekki skilgreint upphaf eða endi.
Þegar Eygló er spurð hvernig listamaður hún sé, svarar hún:
„Ég vinn yfirleitt í ákveðið samhengi, fyrir sýningar eða önnur myndlistarverkefni. Ég kanna aðstæður og viðfangsefni og hefst svo handa. Vinnuferlið einkennist af umbreytingarferlum, ég sé ekki fyrir mér lokaniðurstöðu fyrirfram, heldur vinn ég með efniviðinn í ferli sem getur tekið langan tíma. Það kemur að hárfínu andartaki þar sem verkið er fullmótað.“

En hvernig var vinnan að verki sem snýst aðallega um æðarfugla?

„Upplifunin var sterk, ég dvaldi vikulangt á vinnustofu í æðarvarpi tvisvar í vinnuferlinu. Fyrra vorið vann ég dagbók sem er skrásetning á umhverfi fuglsins, náttúrunni og starfi æðarbóndans. Fuglinn upplifði ég sem samfélag og hreyfingu í landinu. Seinna vorið skoðaði ég einstaklingana og atferli þeirra betur, dagbókin sem ég vann úr þeirri upplifun fer dýpra inn í eigindir fuglsins, dúninn, atferli, hreyfingar o.þ.h. Ég lærði margt um æðarfuglinn og þessi vinna var mjög gefandi og spennandi.“

Og að lokum, hvað ættu allir að vita um æðarfuglinn?

„Mér fannst mikilvægt að kynnast einstöku sambandi æðarbóndans við fuglinn. Æðarfuglinn minnir okkur á viðkvæmt samspil í náttúrunni, umhyggju og jafnvægi.“
Hægt er að skoða verk Eyglóar inni á bókasafni Hornafjarðar fram í janúar 2023.