
Í Nýheimum geta námsmenn, einyrkjar, frumkvöðlar, rannsakendur og raunar allir sem vinna að hvers konar verkefnum fengið afnot af vinnu- og námsaðstöðu. Nýheimar þekkingarsetur veitir aðgang að aðstöðunni og er hún notendum að kostnaðarlausu.
Nemendabásar eru í opnu rými á austurgangi en einnig er aðstaða í skrifstofurými þar sem eru fjögur skrifborð með skjá, lyklaborði og mús. Notendur hafa einnig aðgang að sameiginlegri kaffistofu starfsfólks á vesturgangi og fundarherbergi eftir þörfum.
Markmið setursins með aðstöðunni er að veita sem flestum aðgang að rými til að vinna að sínum hugmyndum og verkefnum í skapandi og faglegu umhverfi. Nýheimar þekkingarsetur býður einnig upp á stuðning í formi ráðgjafar um styrki og aðra stuðningsmöguleika. Í Nýheimum er öflugt þekkingarsamfélag og gefandi starfsumhverfi. Við hvetjum alla áhugasama til að hafa samband, fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á nyheimar@nyheimar.is eða kíkja til okkar.




