Mikil eftirvænting ríkti þegar liðin Berserkir og Fortíðar kubbar héldu á dögunum til Grikklands til þátttöku í alþjóðlegri keppni í First Lego League (FLL). Töskur voru pakkaðar, spennan mikil og fram undan ævintýri sem margir höfðu beðið lengi eftir.

Auglýsing

Eftir langt flug til Grikklands gisti hópurinn eina nótt í Aþenu áður en haldið var áfram með rútu til Korinthos, þar sem keppnin FLL Open International fór fram á svæðinu The Ranch. Þar komu saman lið frá 55 þjóðum og fengu þátttakendur einstakt tækifæri til að kynnast jafningjum alls staðar að úr heiminum.

Fljótlega varð ljóst að First Lego League snýst um meira en sjálfa keppnina. Samvinna, virðing og vinátta voru í forgrunni, auk þess sem lið skiptust á minjagripum og varningi frá heimalöndum sínum og kynntu verkefni sín í sýningarbásum.

Opnunarhátíð keppninnar þótti sérstaklega eftirminnileg. Þar voru liðin kynnt inn í salinn við hávær fagnaðarlæti, tónlist, ljósasýningu og mikla stemningu. Þátttakendur veifuðu þjóðfánum sínum og fögnuðu saman í fjölbreyttu og alþjóðlegu samfélagi ungs fólks. Sérstaklega þótti eftirminnilegt að sjá íslenska fánann meðal fjölmargra þjóða og upplifa samkenndina sem ríkti meðal keppenda.

Eftir tvo langa og viðburðaríka keppnisdaga lá niðurstaðan fyrir. Berserkir enduðu í 44. sæti af 56 liðum og Fortíðar kubbar í 36. sæti.

Að keppni lokinni hélt hópurinn aftur til Aþenu þar sem tími gafst til að njóta borgarinnar. Á dagskrá voru meðal annars heimsókn á McDonald’s og verslunarferð í miðborginni, auk þess sem margir fengu í fyrsta sinn að prófa neðanjarðarlest borgarinnar.

Þriðjudagurinn fór í afslöppun og skemmtun við Bolivar Beach Club þar sem þátttakendur nutu sólar, sjávar og góðs félagsskapar. Hjólabátar og strandlífið slógu í gegn, þó sumir hafi þurft að fjárfesta í aftersun eftir sólríkan dag.

Á síðasta degi ferðarinnar heimsótti hópurinn Acropolis-hæðina í Aþenu og fékk fróðlega leiðsögn um bæði svæðið og sögu borgarinnar. Síðar sama dag var haldið á flugvöllinn og ferðinni heitið aftur heim til Íslands eftir viðburðaríka og eftirminnilega ferð.

Að lokum viljum við þakka öllum kærlega fyrir stuðninginn í vetur og gera ferðina að veruleika.

Jón Guðni, Sunna G. og legókrakkarnir 

Tags: