Upphaf hrós dálksins
Ragnheiður Rafnsdóttir hafði samband við ritstjóra Eystrahorns með þá frábæru hugmynd að í hverju tölublaði yrði birt hrós eða þakklæti. Hún ríður á vaðið og skrifar nokkur orð hér fyrir neðan. Við viljum gjarnan gera þetta að föstum lið og eru lesendur sem vilja hrósa eða þakka fyrir eitthvað í okkar samfélagi hvattir til að senda á eystrahorn@eystrahorn.is.
Samkór Hornafjarðar

Þar sem mér finnst nóg um neikvæðni og erfiðar fréttir hvert sem ég lít langar mig að við lítum til þess sem vel er gert í sveitarfélaginu og þar er af nógu að taka. Ég ætla að fá að hefja þennan skemmtilega þakklætis og hrós hring. Mig langar að fá að hrósa Samkór Hornafjarðar ásamt undirleikara og stjórnanda kórsins Hrafnkeli Karlssyni fyrir fallega tónlist um jól og áramót. Fyrir að starfa í sjálfboðavinnu fyrir okkur hin bæði á gleði og sorgar stundum. Kærar þakkir.
Við hvetjum lesendur sem vilja hrósa eða þakka fyrir eitthvað í okkar samfélagi til að senda tölvupóst á eystrahorn@eystrahorn.is




