Ágæti kjósandi,
Við frambjóðendur XD í Sveitarfélaginu Hornafirði leggjum fram skýra sýn um áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins. Við byggjum á ábyrgð, traustri fjármálastjórn og metnaði fyrir samfélagið okkar. Við mótun stefnunnar áttum við víðtækt samtal við íbúa um allt sveitarfélagið og þökkum þeim sem lögðu sitt af mörkum fyrir mikilvægt framlag í þeirri vinnu.
Við höfum á kjörtímabilinu unnið markvisst að því að efla þjónustu, styrkja innviði og bæta rekstrarumhverfi – með góðum árangri. Rekstur sveitarfélagsins er mjög traustur, þjónusta hefur verið bætt og ráðist hefur verið í fjölbreytt verkefni á sviði skóla-, velferðar-, skipulags-, íþrótta- og atvinnumála.

Við höfum þannig lagt traustan grunn að áframhaldandi uppbyggingu um allt sveitarfélagið. Við vitum þó að verkefnin framundan eru stór. Vöxtur og þróun samfélagsins krefst skýrrar stefnu, góðrar samvinnu og skynsamlegra ákvarðana sem byggja á hagsmunum íbúa til lengri tíma.
Við bjóðum okkur fram til áframhaldandi þjónustu við samfélagið með áherslu á ábyrgð, festu og vönduð vinnubrögð. Við hvetjum þig til að kynna þér áherslur okkar í stefnuskránni og taka upplýsta ákvörðun í sveitarstjórnarkosningunum.
Við þökkum traustið á liðnum árum og óskum eftir þínum stuðningi til að halda áfram að byggja upp enn sterkara samfélag í Sveitarfélaginu Hornafirði – til framtíðar fyrir okkur öll.
Frambjóðendur XD í Hornafirði
X við D 16. maí




