
Kæru lesendur
Mig langar að beina hrósi mínu núna til starfsfólks Skjólgarðs og þá ekki síst fólkinu sem vinnur í eldhúsinu. Núna þessi misserin hefur verulega verið þrengt að vinnusvæði þeirra sem útbúa mat fyrir stóran hluta bæjarbúa. Ástæðan er bygging nýja hjúkrunarheimilisins sem hefur tekið langan tíma. Það er framreiddur matur sem víða fer í bænum. Skal fyrst nefnt heimilis- og starfsfólk Skjólgarðs. Einnig Félagsþjónustuna dagdeild og Dagvist aldraðra og eldra íbúa sem koma utan úr bæ og fá hádegismat í Ekru. Ofan á þetta er eldaður heitur matur fyrir grunnskólann, nemendur og starfsfólk. Ekki hef ég á reiðum höndum hversu margir munnar nýta þessa þjónustu , en margir eru þeir. Því tek ég ofan fyrir fólkinu sem stendur vaktina svo við hin fáum góðan og næringarríkan mat. Þið eruð fyrirmyndir fyrir okkur hin og ég þakka ykkur af heilum hug.
Við hvetjum lesendur sem vilja hrósa eða þakka fyrir eitthvað í okkar samfélagi til að senda tölvupóst á eystrahorn@eystrahorn.is




