Nú styttist í sveitarstjórnarkosningar og gefst okkur, kosningabærum íbúum þá tækifæri til að velja okkur þann flokk sem við viljum að sitji við stjórnvölin næstu fjögur árin.

Auglýsing

Sjálfstæðisflokkurinn á Hornafirði heldur að þessu sinni prófkjör þar sem flokksbundnum sjálfstæðismönnum gefst kostur á að velja frambjóðendur á listann sinn.  Sjálf sækist ég eftir þriðja sæti á þeim lista.

Ég tel að það skipti miklu máli að fólki séu gefnir valkostir varðandi þjónustu sveitarfélagsins og menn geti hagrætt sínum málum þannig að það komi sem best út fyrir hvern og einn. Við búum við ólíkar aðstæður, erum af ólíkum uppruna og höfum ekki öll sömu gildi eða væntingar.

Ég er sjálf uppalin í dreifbýlinu og settist þar að en sæki atvinnu í þéttbýlið. Ég á börn í leik- og grunnskóla svo ég finn á eigin skinni hvernig málin standa þar. Ég er í góðu sambandi við fólkið í kringum mig og vil stuðla að meiri gæðum í daglegu lífi íbúa sveitarfélagsins en með auknu vali tel ég að megi bæta lífsgæði og einfalda líf fólks.

Það að við höfum val um búsetu, án þess að það bitni á jafnræði í þjónustu, að börnin okkar sitji við sama borð þegar kemur að íþróttum og öðrum tómstundum, skiptir allt máli. Fjölbreytt atvinna og húsnæði eru lykilforsendur þess að það sé raunhæfur kostur að flytja aftur heim að loknu framhaldsnámi eða ævintýraleit. En einnig verðum við að standa vörð um það nám sem hér fer fram. Ég tel að það sé mikilvægt fyrir okkur sem sveitarfélag að hafa sem flesta aldurshópa hér á svæðinu, það auðgar samfélagið.

Ég vil stuðla að bættri nýtingu fjármagns og mannauðs sveitarfélagsins. Margt hefur áunnist undanfarin fjögur ár en við þurfum að halda áfram og gera enn betur, með nýju fólki koma nýjar hugmyndir.

Þitt er valið.

Með vinsemd og virðingu,
Ásta Steinunn Eiríksdóttir

Tags: