Undankeppni Söngkeppni Samfés á Suðurlandi var haldin á Flúðum á dögunum og tók Þrykkjan þátt eins og svo oft áður. Að þessu sinni steig ný stelpnahljómsveit á svið, Spírall, skipuð sex ungmennum úr Þrykkjunni á aldrinum 14 til 16 ára. Í hljómsveitinni eru þær Björg Kristjánsdóttir, Björg Sveinsdóttir, Bryndís Björk Hólmarsdóttir, Bryndís Jóna Valdimarsdóttir, Emilía Ósk Jóhannsdóttir og Freyja Dís Tjörvadóttir.

Auglýsing

Níu félagsmiðstöðvar víða af Suðurlandi stigu á svið í undankeppninni og aðeins tvö atriði komust áfram. Spírall flutti lagið Creep með Radiohead og tryggði sér með flutningi sínum sæti í aðalkeppni Söngkeppni Samfés sem fram fer í Laugardalshöll 9. maí. Stelpurnar svöruðu nokkrum spurningum um hljómsveitina, keppnina og það sem er framundan.


Hvernig varð hljómsveitin Spírall til?
Við erum svo heppnar að amma og afi einnar okkar eru með fullt af hljóðfærum heima hjá sér og við vorum nokkrar að leika okkur að búa til hljómsveit og æfa okkur þar og svo var stofnaður tónlistarklúbbur í Þrykkjunni og við skráðum okkur og þá fengum við hjálp hjá Björgu og Þorkeli og þá varð þetta meira alvöru hljómsveit og þá fórum við æfa nokkur lög af alvöru.

Hvenær hófst undirbúningurinn fyrir keppnina?
Við byrjuðum sennilega í nóvember eða desember á síðasta ári. Þá fórum við að æfa nokkur lög og svo fór þetta bara á fullt í janúar og febrúar þegar við vissum að við fengjum að keppa í Undankeppni Söngkeppni Samfés á Suðurlandi (USSS)

Hafið þið oft komið fram áður?
Við höfum ekki oft komið fram, en samt nokkrum sinnum. Fyrst spiluðum við í Tónskólanum þegar verið var að velja hvaða lag ætti að fara áfram. Svo fengum við líka tækifæri til að opna Blúshátíðina í byrjun mars sem var ótrúlega skemmtilegt og gaf okkur smá reynslu áður en við fórum í undankeppnina á Flúðum.

Hvernig kom það til að þið völduð að æfa Creep?
Við vorum með lista af lögum og völdum nokkur til að byrja að æfa, meðal annars Creep með Radiohead, Dreams með Fleetwood Mac og Come As You Are með Nirvana. Okkur fannst Creep bara flott og svolítið öðruvísi lag, og við fílum líka gamla tónlist. Svo var það í höndum dómaranna í undankeppninni hérna heima að skera úr um það og þeim fannst að það lag ætti best heima í keppninni og það var greinilega mjög gott val.

Hvernig var að stíga á svið í undankeppninni á Flúðum?
Það var mjög spennandi en líka stressandi. Flestar okkar voru frekar stressaðar fyrst, sem er örugglega bara mjög eðlilegt, en svo þegar við fórum loksins á sviðið varð þetta bara geðveikt skemmtilegt. Við höfðum líka farið í hópefli með Bjarti peppara fyrr í mánuðinum sem hjálpaði mikið.

Hvernig leið ykkur þegar úrslitin voru tilkynnt og þið vissuð að þið kæmust áfram?
Við trúðum þessu eiginlega bara ekki og vorum í algjöru sjokki. Við vorum rosalega hissa en líka ótrúlega glaðar og þakklátar. Eftir atriðið hlustuðum við á streymið og okkur fannst það ekki hljóma nógu vel þar, þannig að við áttum alls ekki von á þessu. Svo heyrðum við myndband af atriðinu á Instagram hjá Þrykkjunni og þá fannst okkur þetta hljóma miklu betur, þannig að þá skildum við þetta aðeins betur.

Hvað finnst ykkur skemmtilegast við að spila saman sem hljómsveit?
Það skemmtilegasta er bara að spila saman og fá að koma fram. Það er líka alltaf mjög gaman á æfingum hjá Björgu og Þorkeli. Við stelpurnar náum líka mjög vel saman og það gerir allt miklu skemmtilegra.

Eruð þið allar í tónskólanum?
Fjórar okkar eru í tónskólanum, þó ekki endilega allar að læra á sama hljóðfæri og við spilum á í hljómsveitinni.

Eruð þið með einhver skilaboð til Hornfirðinga sem ætla að fylgjast með og hvetja ykkur áfram?
Takk kærlega fyrir allan stuðninginn. Hann skiptir ótrúlega miklu máli fyrir okkur og gefur okkur kraft til að halda áfram. Og já, bara áfram Spírall!

Tags: