Hér ætla ég að tæpa á nokkrum af þeim markmiðum sem fram komu í málefnasamningi XD og KEX fyrir kjörtímabilið.
Skipulagsmál er umfangsmikill og krefjandi málaflokkur – ekki síst þegar kraftur er settur í framkvæmdir og mikil uppbygging. Fundum umhverfis- og skipulagsnefndar hefur verið fjölgað, og reynst ákaflega vel.
Endurskoðun aðalskipulags var sett í gang strax í upphafi kjörtímabilsins. Á öllum stigum vinnunnar hefur verið lögð áhersla á vandaða upplýsingagjöf og samtal við íbúa og aðra haghafa. Vinnslutillaga var kynnt í skipulagsgátt í sumar. Tillögur að svörum lagðar fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd í byrjun október. Og þaðan send á Skipulagsstofnun til yfirferðar. Á næstu dögum verður tillagan auglýst að nýju og opnað fyrir athugasemdir.
Strax í upphafi kjörtímabilsins var stefnan sett á að leggja drög að nýju hverfi. Nú eru lóðir í fyrsta áfanga í glæsilegu Hagahverfi lausar til úthlutunar. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir öllum gerðum íbúða.

Á þessu ári munum við ná stórum áfanga með framkvæmdum við svokallaðan áfanga 4b, og að þessu loknu verður allur bærinn loks kominn í tengingu við dælustöðina í Óslandi.
Við höfum unnið markvisst allt kjörtímabilið að því að bæta leikvelli sveitarfélagsins. Nýr leikvöllur var settur upp í Miðtúninu og nýr glæsilegur leikvöllur á Leirusvæðið. Þá fór fram endurnýjun á leikvellinum á tjaldsvæðinu hér á Höfn. Þá er ný leikvallaáætlun langt komin en hún tekur til allra leikvalla í sveitarfélaginu.
Unnið er þétt að nýrri og endurskoðaðri umferðaröryggisáætlun. Við höfum malbikað göngustíga unnið að því að bæta ferðaleiðir innabæjar t.d. við golfvöllinn.
Fjárfest hefur verið í tveimur nýjum slökkvibílum. Annar bíllinn er hér á Höfn og hinn bíllinn í Öræfum. Sú bifreið er bylting fyrir viðbragðsaðila í Öræfum og Suðursveit.
Í upphafi kjörtímabilsins var gerð heildstæð úttekt á íbúðaeignum sveitarfélagsins með það að markmiði að tryggja að eignasafnið endurspeglaði raunverulega þörf íbúa. Í kjölfarið voru 18 íbúðir seldar inn í Leigufélagið Bríet. Með sölunni tók Bríet yfir lán að fjárhæð um 170 milljónir króna, skuldbatt sig til uppbyggingar nýrra leiguíbúða í sveitarfélaginu.
Þá eru viðræður við Bríet um að byggja hagkvæmar leiguíbúðir á fjölbýlishúsalóð í nýju Hagahverfi.
Eitt af því sem sveitarfélagið hefur gert undanfarið er aukinn stuðningur við íþróttafélög og tómstundastarf. Nýr fimm ára samningur var nýlega undirritaður við UMF Sindra og framlög hækkuð. Þá voru endurnýjaðir samningar við fleiri félög, framlög hækkuð og fjárhæðir vísitölutengdar. Í þessu sambandi má nefna Golfklúbbinn, UMF Vísi í Suðursveit og Akstursíþróttafélag Austur Skaftafellssýslu.
Eitt af stóru málunum var að fara í undirbúning og skipulagsvinnu varðandi nýtt íþróttahús á miðsvæði Hafnar í góðu samráði við alla hagsmunaaðila.
Nú er unnið að því að samræma vinnu stýrihóps við þarfagreiningu fyrir grunnskólann, þannig að þessi stóru verkefni tali saman á öllum sviðum. Markmið okkar er að framkvæmdir geti hafist á árinu.
Þótt ég hefði kosið að þetta hefði gengið hraðar, tel ég jafnframt að þessi langi og mikli undirbúningur geti skilað enn betri niðurstöðu fyrir samfélagið til lengri tíma litið.
Ný tveggja deilda viðbygging var tekin í notkun við leikskólann á síðasta ári og nú fá öll börn í Hornafirði leikskólavist frá 12 mánaða aldri. Leikskólamál hafa verið í forgangi hjá bæjarstjórn á kjörtímabilinu.Til að bregðast við mönnunarmálum var settur á laggirnar þverpólitískur starfshópur um leikskólamál sem skilaði í byrjun árs 2024 ítarlegri greiningu á stöðu málaflokksins. Markmiðið var skýrt: að styrkja mannauðinn, bæta aðstæður starfsfólks og gera leikskólana okkar að eftirsóknarverðum vinnustöðum. Bæjarstjórn samþykkti tillögurnar. Viðbrögð starfsfólks hafa verið jákvæð og starfsánægja hefur aukist, þótt mönnun sé enn áskorun – og verði líklega áfram í einhverjum mæli.
Gríðarlega mikið og gott starf hefur verið unnið á velferðarsviðinu á kjörtímabilinu og höfum við markvisst veitt málaflokknum aukna athygli. Það hefur skilað sér í bættri og aukinni þjónustu við okkar besta fólk, bæði í Miðgarði, Ekru og í virkniþjónustunni í Selinu. Nú eru framundan mikilvægar framkvæmdir í Ekru, unnar í góðu samstarfi við Félag eldri Hornfirðinga, þar sem farið verður í endurnýjun á sal, eldhúsi og dagvist aldraðra í öðru rými í Ekru.
Umfangsmiklum endurbótum á Sindrabæ lauk síðasta haust. Húsnæðið allt hefur nú verið endurbætt frá grunni og aðstaða færð upp á það stig sem best verður á kosið.
Komið var á fót íbúaráðum með fulltrúum úr Öræfum, Suðursveit, Mýrum, Nesjum og Lóni, til að efla upplýsingaflæði og styrkja samtal við íbúa dreifbýlisins. Þessi aðgerð hefur reynst afar verðmætur vettvangur fyrir samráð, samtal og miðlun sjónarmiða
Áhersla er á að efla Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Menningarmiðstöðin fékk meðal annars Gömlubúð aftur til afnota á kjörtímabilinu, tveir starfsmenn voru ráðnir til starfa í húsinu og líf hefur snúið aftur í þessa sögulegu byggingu með lifandi tónlistar- og menningarviðburðum.
Í upphafi kjörtímabilsins var farið í heildarútboð á sorphirðu í sveitarfélaginu og síðan þá hefur verið unnið markvisst að því að bæta bæði þjónustu við íbúa og rekstur málaflokksins. Ljóst að sorpmál eru og verða áfram áskorun, bæði hvað varðar framkvæmd, skipulag og kostnað, enda um stóran, tæknilega flókinn og síbreytilegan málaflokk að ræða.

Fjármálastjórn hefur einkennst af skynsemi, skýrri forgangsröðun og langtímahugsun, þar sem markmiðið hefur verið að tryggja stöðugleika, draga úr áhættu og skapa svigrúm til nauðsynlegra fjárfestinga í innviðum og þjónustu.
Við höfum lagt okkur fram um að taka ákvarðanir á grundvelli gagna og raunhæfra forsendna, fremur en skammtímasjónarmiða, og haft að leiðarljósi að hver króna nýtist íbúum og samfélaginu sem best.
Sveitarfélagið Hornafjörður stendur í dag mjög vel fjárhagslega og er vel í stakk búið til að takast á við áframhaldandi uppbyggingu innviða og þjónustu við íbúa.
Með virkri hagsmunabaráttu höfum við í fyrsta skipti í sögunni, náð raunverulegum fyrirsjáanleika í dýpkun á Grynnslunum, losnað undan fjárhagslegri skuldbindingu upp á rúmlega hálfan milljarð króna vegna nýja hjúkrunarheimilisins og unnið þarfagreiningu fyrir nýja björgunarmiðstöð í Öræfum. Jafnframt hefur verið tryggt áframhaldandi heilsárs bráðaviðbragð á svæðinu og komið af stað verkefni hjá HSU um að skoða með hvaða hætti hægt er að byggja upp varanlega heilbrigðisþjónustu í Öræfum.
Í þessari grein hef ég stiklað á stóru um helstu áherslur og árangur kjörtímabilsins, en það sem hér hefur verið nefnt er þó langt frá því að vera tæmandi listi. Verkefnin eru mörg, fjölbreytt og spanna ólíka málaflokka – en eiga það sameiginlegt að snúast um að styrkja samfélagið okkar, bæta þjónustu og byggja upp til framtíðar.
Þetta hefur verið skemmtilegt kjörtímabil sem hefur einkennst af bjartsýni, framkvæmdagleði og trú á Hornafjörð. Uppbygging hefur verið mikil víðs vegar um sveitarfélagið, bæði í þéttbýli og dreifbýli.
Atvinnulífið í Hornafirði er geysilega kröftugt og það sést best á öflugum fjárfestingum, nýsköpun og metnaði. Það er þessi þróttur, dugnaður og framtíðarsýn sem knýr samfélagið áfram – og það er ekki sjálfgefið, heldur byggir á fólkinu sjálfu.
Framundan eru spennandi tímar fyrir Hornafjörð: nýr þjóðvegur, hringtorgið góða, uppbygging á nýju verslunarsvæði, nýtt íbúðahverfi mun rísa, nýtt uppsjávarveiðiskip kemur innan skamms, nýr frystiklefi sem er í raun leikbreytir, uppbygging í Hoffelli og samstarf við Landsbyggð um nýjan miðbæ á Höfn – svo aðeins brot sé nefnt. Þetta eru ekki bara hugmyndir á teikniborði, heldur raunveruleg verkefni sem munu hafa áhrif á daglegt líf fólks, atvinnu, þjónustu og samfélagsanda.
Samstarf meirihlutans, XD og KEX, hefur verið traust og málefnalegt, en ekki síður vil ég leggja áherslu á að samskipti og samtal við aðra flokka hafa verið í heildina jákvæð og uppbyggileg. Við erum heppin hér í Hornafirði að deila að mörgu leyti svipaðri sýn á helstu verkefnin og áherslurnar – að við viljum öll byggja upp fallegt, öflugt og mannvænt sveitarfélag þar sem fólk vill búa, starfa og ala upp börn sín.
Ég er þakklátur fyrir traustið sem mér og okkur hefur verið sýnt og stoltur af því sem við höfum unnið saman – kjörnir fulltrúar, starfsfólk sveitarfélagsins, fyrirtæki, félagasamtök og íbúar. Hornafjörður er samfélag í sókn – og framtíðin hér er björt.

Fyrir hönd kjörinna fulltrúa X-D lista Sjálfstæðismanna í Hornafirði
Gauti Árnason



