Listamaðurinn Ragnar Imsland fer ekki mikinn, hógværðin og róleg nærvera er hans aðalsmerki, og það sama gegnir um eiginkonu hans, Júlíu. Ég hef lengi gengið með þann draum að kynna þau hjón, því alltaf bætast jú nýir hópar í skörðin! Tók því hús á þeim hjónum svona í svartasta skammdeginu, vitandi að ljós og hlýja myndi mæta mér.
Jú rétt, mér mætti hlýja í notalegu húsiþeirra hjóna, Ragnars og Júlíu, í húsi sem
örðugt er að lýsa öðruvísi en stórkostlegu listaverki.
Við eldhúsborðið var gott að spjalla, og kóngur hússins rölti á milli okkar og spjallaði við hjónin en lét gestinn vera, mjálmaði þó einu sinni. Ragnar Imsland er fæddur á Höskuldsstöðum á Djúpavogi á því herrans ári 1936, en er upprunalega Norðfirðingur. Faðir hans reri frá Norðfirði en móðirin beið í foreldrahúsum á Djúpavogi eftir að fæða. Lífsbaráttan var oft erfið á bernskuárum Ragnars, berklar
herjuðu á og allir aðdrættir um allt ólíkir og eru í dag. Menn björguðu sér um nánast allt sem þeir þurftu og finnst mér ekki ólíklegt að snemma hafi komið í ljós smíðahæfileikar Ragnars, því þeir eru svo ekki er um villst aldeilis stórkostlegir. Hann sagðist hafa verið um sex ára aldurinn þegar hann fór með 3ja mastra skútu, Stellu Maríu frá Norðfirði til Seyðisfjarðar og man mest og best eftir hvað hún var falleg, öll í mahoni! Lars afi Ragnars var listasmiður og eins Kristján Imsland faðirRagnars, og Höskuldur móðurafi hans einnig, þannig að þetta með eplið og eikina á vel við í þessu samhengi.
EKKI EFNI Í BÓNDA
Fjölskylda Ragnars flutti hingað á Höfn árið 1944 og hefst þá nýr kafli í lífi okkar manns. Ragnar vann ýmsa vinnu eins og títt var um unga menn í lífsbaráttunni, vann mikið við smíðar og keyrslu. Lars bróðir Ragnars átti vörubíl sem Ragnar vann á og fór víða. Meðal annars norður á Langanes. Í einni vinnuferðinni aðstoðaði hann unga stúlku með bilaðan bíl, og bingó, þar var konuefnið komið. Júlía er frá Ytra Lóni á Langanesi og hafa þau gengið sömu götuna yfir 70 ár og eiga þau 4 börn. Ragnar segir sposkur að það hafi verið reynt að gera hann að bónda en lítið hefði hafst upp úr því. Ungu hjónin flytja svo hingað á Höfn og má segja að þau séu nokkurns konar frumbyggjar staðarins. Ragnar og Júlía byggðu sér myndarlegt hús í Miðtúni og búa þar enn. Vinna, uppbygging, barnauppeldi og allt sem þurfti var gert, húsið er nánast alfarið þeirra verk. Ragnar vann lengi á Stokksnesi en Júlía sá um börn og bú. Seinna rak hún svo verslun, sá um happdrætti Das og var umboðsmaður Sjóvár, ásamt því að vera fréttaritari hjá DV. Þegar Ragnar hætti á Stokksnesi varð hann slökkviliðsstjóri og eldvarnareftirlitsmaður sýslunnar og endaði sína vinnustund þar. Ásamt allri vinnu smíðaði hann og skapaði ótrúleg listaverk. Að vera kominn á þennan aldur og geta afrekað það sem hann gerir er ótrúlegt. Sama hvert litið er í þessu stóra húsi eru listaverk, og hvergi sést svo mikið sem rykarða. Júlía sér um það! Tvisvar á ári tekur hún sig til og ber eðalolíu á alla smíðamuni, og getur það hvorki verið auðvelt né fljótlegt
FÓSTURJARÐARTROG
Ragnar hefur smíðað ótal hluti og gefið, ekki kemur til mála að selja! Hann hefur smíðað og gefið í 6 kirkjur svokölluð fósturjarðartrog. Það er nýyrði eftir Ragnar, og hefur ratað í Árnastofnun. Fósturjarðartrog er moldarker sem notað er til moldunar við útfarir. Ellefu ræðupúlt eru til eftir Ragnar, og 5 bátar prýða heimilið sem væri hægt að sjósetja strax í dag. Aðspurður finnst Ragnari þó mest til koma bátnum Hvanney SF 51, en hann stendur sína pligt úti í Skinney – Þinganesi. Klukkur af öllum stærðum og gerðum eiga sinn stað í húsinu ásamt öllu sem vart er hægt að koma í orð. Fyrir nú utan að Ragnar er jafnvígur á tré og járn. Fyrir leikmann eins og mig skil ég ekki hvernig einn maður getur gert allt þetta, og ég veit að aðrir listasmiðir gapa af undrun við að heimsækja þau hjón. Einn vinur Ragnars hvatti hann mjög fyrir margt löngu að smíða eitthvað sem enginn hefði smíðað og Ragnar og Júlía á heimili sínu hringdi af og til þessu til áréttingar. Svar Ragnars var að það tæki tímann sinn að skerpa sögina því gripurinn átti að verða fínn. Þá datt uppúr listamanninum eftirfarandi vísa:
Gæti ég leyst það verkefnið
sem yrði mitt handverks undur.
Þá væri það helst að föndra við
að saga sandkorn í sundur
Sem sagt: Maðurinn getur líka sett saman vísur. Það var yndislegt að sitja og spjalla við þessa tvo öðlinga sem láta ekki deigan síga þrátt fyrir háan aldur. Megi listin og góð heilsa fylgja þeim hjónum Ragnari og Júlíu Imsland áfram sem hingað til





