Afmælismálþing Rannsóknasetursins

0
397

Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Hornafirði fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir en setrið var stofnað í nóvember 2001. Af því tilefni verður ársfundur rannsóknasetra haldinn á Höfn 23.-24. mars og fyrri daginn verður boðað til veglegs afmælismálþings í Nýheimum þar sem starfsmenn nokkurra setra munu kynna rannsóknaverkefni sín. Ýmsir gestir koma til þess að taka þátt og munu Jón Atli
Benediktsson rektor, og Áslaug Arna Sigurðardóttir ráðherra bæði flytja ávörp á málþinginu. Málþingið er öllum opið og því verður einnig streymt.

Fundarstjóri er Soffía Auður Birgisdóttir fræðimaður við Rannsóknasetur HÍ á Hornafirði.