
Það er spennandi vetur framundan fyrir Sindra og samfélagið allt í Hornafirði.
Síðasta vor skrifuðu strákarnir okkar í meistaraflokki karla í körfubolta nýjan kafla í sögu félagsins þegar þeir tryggðu Sindra sæti í efstu deild, Bónusdeildinni, í fyrsta sinn. Það var stór stund, ekki bara fyrir leikmennina og þá sem standa næst liðinu, heldur fyrir allt Sindrasamfélagið.
Árangur sem byggir á góðum grunni
Árangur sem þessi verður ekki til á einni nóttu. Að baki liggur margra ára vinna fjölda fólks; leikmanna, þjálfara, stjórnarfólks, foreldra, sjálfboðaliða og styrktaraðila. Ekki síður liggur þar að baki öflugt starf með börnum og ungmennum í Hornafirði, en það starf verður alltaf grunnurinn að árangrinum.
Það er sérstakt fyrir fámennt samfélag að eiga lið meðal þeirra bestu á Íslandi í hópíþrótt þar sem samkeppnin er jafn mikil og í íslenskum körfubolta. Við ætlum að njóta þess, en um leið halda áfram að byggja ofan á þann góða grunn sem lagður hefur verið undanfarin ár.

Markmiðið er ekki aðeins að eiga öflugt meistaraflokkslið, heldur að körfuboltinn í sveitarfélaginu haldi áfram að vaxa og að krakkarnir okkar sjái að hér heima er hægt að setja sér stór markmið og ná þeim. Samstarf okkar við UMF Mána er hluti af þeirri uppbyggingu. Með því viljum við skapa fleiri tækifæri fyrir unga leikmenn til að spila, þroskast og taka næstu skref, og byggja þannig enn sterkari brú frá yngri flokkum yfir í meistaraflokkskörfubolta.
Samfélagið stendur með okkur
Við höfum fundið fyrir ótrúlega miklum meðbyr síðustu mánuði. Heimafyrirtæki í Hornafirði hafa tekið okkur einstaklega vel og sýnt verkefninu mikinn stuðning. Við erum afar þakklát öllum þeim fyrirtækjum sem hafa ákveðið að standa með okkur. Án þeirra væri einfaldlega ekki hægt að ráðast í verkefni af þessari stærðargráðu. Stuðningurinn gerir okkur kleift að takast á við verkefnið af krafti og sýnir um leið hversu sterkt samfélag stendur að baki Sindra.
Sterkur heimavöllur á Höfn
Nú hefst nýtt ævintýri. Það verða sigrar, vonandi margir, og eflaust eitthvað mótlæti líka. En eitt er víst: við ætlum að mæta í þetta verkefni af krafti, gleði og stolti fyrir hönd Sindra og Hornafjarðar.
Við hlökkum til að sjá ykkur í Ice Lagoon höllinni í vetur. Þar viljum við skapa sterkan heimavöll og góða stemningu – þannig að þegar lið mæta austur til okkar finni þau strax að hér stendur heilt samfélag saman á bak við sitt lið.
Áfram Sindri!




