Geðhjálp og Barnaheill á Vestfjörðum. Aðsend mynd.

Barnaheill, Geðhjálp og Unnsteinn Manúel verða á Höfn fimmtudaginn 8. október sem hluti af ferð þeirra um Austfirði þar sem rætt er við ungmenni um samskipti, tengsl og líðan.

Á skólatíma verður haldin vinnustofa með nemendum úr efstu bekkjum grunnskóla svæðisins þar sem rætt verður um veruleika ungs fólks og þau málefni sem standa þeim næst.

Auglýsing

Um kvöldið, kl. 17:00, verður opinn íbúafundur í Nýheimum þar sem farið verður yfir helstu niðurstöður vinnustofunnar og rætt um jákvæð skilaboð sem hægt er að byggja áfram á í samfélaginu og á heimilum.

Fundurinn er opinn öllum, þó ekki sé æskilegt að börn yngri en 12 ára mæti. Forsjáraðilar, sveitarstjórnarfólk og starfsfólk í skóla-, frístunda-, heilbrigðis- og velferðarmálum eru sérstaklega hvött til þátttöku.

Dagskránni lýkur með stuttum tónleikum Unnsteins Manúels.

Unnið úr fréttatilkynningu frá Barnaheill og Geðhjálp.