
Hoffellsárbrú á Hornafjarðarvegi (987) verður lokuð allri umferð frá kl. 13:30 mánudaginn 5. október til miðnættis fimmtudaginn 8. október vegna viðhaldsframkvæmda.
Vegfarendur eru beðnir um að fara um Hringveg (1) um Hornafjarðarfljót á meðan lokunin stendur yfir. Engin gjaldtaka verður á Hringveginum á þessu tímabili.
Um er að ræða nauðsynlegar viðhaldsaðgerðir á einbreiðu Hoffellsárbrúnni. Ekki var hægt að ráðast í framkvæmdirnar meðan Hornafjarðarvegur gegndi hlutverki Hringvegar, þar sem þá var engin önnur akstursleið um svæðið.
Eftir að umferð var færð yfir á nýjan Hringveg um Hornafjörð varð mögulegt að loka brúnni vegna viðgerða. Framkvæmdirnar áttu upphaflega að fara fram í síðustu viku en var frestað vegna veðurs.
Hornafjarðarvegur (987) verður áfram opinn beggja vegna brúarinnar en ekki verður hægt að aka yfir Hoffellsárbrú meðan á framkvæmdum stendur.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar á svæðinu og sýna aðgát meðan á framkvæmdum stendur.
Grein í samstarfi við Vegagerðina.


