
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu og Landbúnaðarháskóli Íslands hafa undirritað samstarfssamning um náttúrufræðibraut með búfræðisviði til stúdentsprófs.
Námið er fjögurra ára nám þar sem nemendur taka fyrstu tvö árin í skyldu- og grunngreinum við FAS og síðari tvö árin í búfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands. Að námi loknu útskrifast nemendur bæði með stúdentspróf frá FAS og búfræðipróf frá Landbúnaðarháskólanum.
Markmiðið með samstarfinu er að gera nemendum sem hafa áhuga á landbúnaði kleift að ljúka bæði stúdents- og búfræðiprófi á fjórum árum og fá um leið góðan undirbúning fyrir frekara nám og störf tengd íslenskum landbúnaði og náttúru.
Samningurinn við FAS er sá sjötti sinnar tegundar. Fyrsti slíki samstarfssamningurinn var gerður við Menntaskóla Borgarfjarðar árið 2007.
Fréttin er unnin upp úr tilkynningu Landbúnaðarháskóla Íslands.


