Fyrsta æfing Kórals var haldin í Sindrabæ fimmtudaginn 17. september síðastliðinn. Það væri lygi að halda því fram að það hafi ekki örlað á smá stressi hjá stofnendum kórsins fyrir æfinguna.

Auglýsing

“Mætir einhver? Verða þetta bara við? Hvað ef það kemur enginn, eða ótrúlega margir?”

Við vissum raunverulega ekki á hverju við ættum að eiga von á, en VÁ! Mætingin fór fram úr okkar björtustu vonum. Þrjátíu voru saman komin í salnum með það eitt að markmiði að syngja saman. Til fróðleiks þá má nefna það að á fyrstu æfingu Kórals spannaði aldursbilið 55 ár, elst var 70 ára og yngst 15 ára. Einnig er gaman að nefna að þátttakendur komu frá fjórum löndum og sungu allir saman á íslensku. 

Við í Kóral viljum leggja sérstaka áherslu á að búa til öruggt og skemmtilegt umhverfi, þar sem öllum líður vel, ólíkir hópar mætast og tónlistin er í forgrunni. Kórinn er opinn öllum kynjum, en viljum við sérstaklega hvetja karlmenn, unga sem aldna, að ganga til liðs við okkur í Kóral, því það er meira en nóg pláss fyrir tenóra og bassa í blandaða kórnum okkar.

Kórstjóri Kórals er Björg Blöndal og undirleikari er Hörður Alexander Eggertsson. Þau hafa líka fengið Þorkel Ragnar Grétarsson til liðs við sig og ætlar þríeykið að sjá um að útsetja tónlist sérstaklega fyrir kórinn. 

Þeir sem mættu í fyrsta skipti í kór fá sérstakt hrós, við vitum að þetta getur verið risastórt skref út fyrir þægindarammann og ekki auðvelt að taka fyrsta skrefið. Kórinn Kórall vill þakka öllum þeim sem mættu á fyrstu æfinguna hjartanlega fyrir. Ef þið komust ekki á fyrstu æfinguna, en viljið vera með, þá verður næsta æfing fimmtudaginn 1. október klukkan 20:30 í Sindrabæ. 

Hægt er að fylgjast með kórnum bæði á Facebook og Instagram undir nafninu Kórinn Kórall:

Facebook: Kórinn Kórall
Instagram: @korinn.korall

Hvetjum ykkur til að hafa samband ef að þið hafið einhverjar spurningar.

Söngkveðjur,
Birna Jódís Magnúsdóttir
Björg Blöndal
Sigrún Birna Steinarsdóttir
Stefanía Dröfn Vopnfjörð Ingólfsdóttir

Tags: