Það var sannkölluð hátíð á Höfn helgina 11. – 13. september þegar um 200 félagar og gestir víðsvegar af landinu komu saman, deildu hugmyndum, fræddust, skemmtu sér og nutu þess að vera saman. Einnig komu 11 Færeyingar, en þeir eru hluti af okkar umdæmi. Það er alltaf frábært að sjá kraftinn sem verður til þegar jákvætt og velviljað fólk kemur saman með sameiginlegt markmið: að bæta heiminn fyrir börnin.

Auglýsing

Það var einstaklega ánægjulegt að fá til okkar Michael Mulhaul, heimsforseta Kiwanis International, og eiginkonu hans Lauru Mulhaul, ásamt Jo Schwartz, ráðgjafa umdæmis 2026–2027. Nærvera þeirra gerði þingið enn hátíðlegra og sýndi jafnframt þau sterku tengsl sem við eigum innan alþjóðlegrar Kiwanishreyfingar.

Á þinginu var veittur 500.000 króna styrkur til Félags langveikra barna Verndarvængs á Hornafirði og veitti séra Gunnar Stígur Reynisson styrknum móttöku. Enn fremur fengu Einstök börn 1.000.000 og er það upphaf K-dagssöfnunar sem nánar verður auglýst síðar. Á síðasta K-degi fyrir tveimur árum söfnuðust um 80 milljónir og rann styrkurinn til Einstakra barna. Síðast en ekki síst veitti Kiwanisklúbburinn Ós styrk upp á eina og hálfa milljón til að byggja upp starfsnám við framhaldsskólann og veitti Guðjón R. Jónasson skólameistari FAS honum viðtöku.

Einn af hápunktum þingsins var án efa vígsla nýs Kiwanisklúbbs, Jökladísa, sem er kvennaklúbbur á Höfn. Núna eru 18 félagar í klúbbnum og þær vilja gjarnan bæta fleirum við. Áhugasamar konur á Hornafirði eru hvattar til að senda forseta Jökladísanna, Evu Lind póst á jokladisir@kiwanis.is eða til Amor sem er kjör-forseti klúbbsins á netfangið amor@kiwanis.is Ég óska Jökladísum innilega til hamingju og býð þær velkomnar í Kiwanisfjölskylduna. Ég er sannfærður um að þær eiga eftir að láta mikið til sín taka. Um leið vil ég hvetja alla klúbba til að halda áfram að leita að nýjum félögum.

Galaveislan á laugardagskvöldinu var svo sannarlega eftirminnileg. Hljómsveitin Ær og Kýr sá um tónlistina og hélt uppi fjörinu, en Sigurjón Andrésson, fyrrverandi bæjarstjóri Hornafjarðar, stýrði veislunni af miklum myndarskap. Hann tók nokkur lög með hljómsveitinni og gestir tóku undir í söngnum og þá lifnaði dansgólfið við. Það var greinilegt að Kiwanisfélagar kunna ekki aðeins að vinna saman – þeir kunna líka að skemmta sér saman!

Það er ekki hægt að minnast á þingið án þess að þakka sérstaklega þeim sem lögðu á sig ómælda vinnu við undirbúning og framkvæmd þess. Jökladísir og félagar í Kiwanisklúbbnum Ós lögðu gríðarlega mikið á sig til að þingið gæti orðið að veruleika og eiga þau miklar þakkir skildar.

Sérstaklega vil ég færa Þingnefndinni þakkir en í henni voru; Stefán Brandur Jónsson, formaður, Kristján Vilhelm Gunnarsson, Kristjón Elvar Elvarsson, Jón Áki Bjarnason og Geir Þorsteinsson.

Á mínu starfsári 2025–2026 var kjörorðið: „Best fyrir börnin hjá Kiwanis.“ Það á vel við því þegar við fáum nýja félaga, styðjum barn eða fjölskyldu eða vinnum saman að góðu verkefni þá erum við að gera best fyrir börnin hjá Kiwanis.

Kærar þakkir fyrir frábært þing, vinnuna og samveruna.

Sigurður Einar Sigurðsson
Umdæmisstjóri Kiwanisumdæmisins Ísland-Færeyjar 2025–2026

Tags: