Tilraunin sem brotlenti

Vélsleðaferðir eru ein af þeim afþreyingum sem ferðaþjónustufyrirtæki Laufeyjar býður upp á

Hvenær er misheppnuð tilraun orðin ónýt?

Auglýsing

Þessa spurningu er tímabært að spyrja um atvinnustefnu Vatnajökulsþjóðgarðs. Til margra ára hefur verið talað um að náttúruvernd og atvinnustarfsemi geti farið saman og að þjóðgarðurinn eigi að styrkja byggð og atvinnulíf í nágrenni sínu.

Þetta er ekki bara falleg hugsjón. Það er eitt af lögbundnum markmiðum þjóðgarðsins að leitast við að styrkja byggð og atvinnustarfsemi í nágrenni hans og lögin gera jafnframt ráð fyrir samræmingu starfsemi rekstrarsvæða þjóðgarðsins.

Þjóðgarðurinn hefur sjálfur sagt að atvinnustefnan eigi að skapa grundvöll fyrir samstarfi við atvinnulífið og að tryggja þurfi sanngjarna niðurstöðu fyrir þá sem þegar veita þjónustu innan þjóðgarðsins.

En hvernig hefur þetta tekist?

Leyfisveitingar, hæfni og reynsla

Á suðursvæði þjóðgarðsins hafa atvinnurekendur árum saman þurft að sækja sérstaklega um heimild til atvinnustarfsemi og standast umfangsmiklar kröfur um hæfni, fagmennsku, öryggi, búnað og verklag.

Það er eðlilegt þegar um viðkvæma náttúru og öryggi fólks er að ræða. En þegar atvinnurekandi þarf að leggja fram umfangsmikil gögn, uppfylla ýmis skilyrði og sæta eftirliti – en fær síðan jafnvel aðeins skammtímasamning um starfsemina – er rétt að spyrja hvort kerfið sé að skapa þá uppbyggingu sem atvinnustefnan á að stuðla að.

Í leyfisferlinu skiptir menntun máli, en hún er ekki eina mælistikan á hæfni.

Í starfsemi við og á jöklum, fjöllum og viðkvæmri náttúru skiptir áratuga reynsla á vettvangi gríðarlegu máli. Þekking á veðri, landslagi, jöklum og aðstæðum verður ekki öll til í kennslustofu. Hún verður til með vinnu á vettvangi.

Því hlýtur reynsla, staðgóð þekking á svæðinu og ferill viðkomandi að vega þungt þegar hæfni er metin. Prófgráða má ekki sjálfkrafa taka fram yfir áratuga reynslu og þekkingu. Það á að meta hvort tveggja – menntun og reynslu.

Umsóknarferlið

Umsóknir vegna framkvæmda geta verið umfangsmiklar og tímafrekar. Rafræna gáttin tekur auk þess við afar takmörkuðu gagnamagni – svo takmörkuðu að ljósmynd í þokkalegum gæðum getur reynst of stór til að hægt sé að senda hana inn.

Svo kemur biðin – allt að 30 virkir dagar.

Í atvinnugrein þar sem veður, árstíðir og stuttur framkvæmdatími skipta miklu máli getur bið í allt að sex vikur haft veruleg áhrif á rekstur. Afgreiðslutíminn verður sjálfur hluti af óvissunni.

Skilvirk stjórnsýsla á að hjálpa atvinnulífinu að uppfylla reglurnar – ekki verða enn ein hindrunin sem fyrirtækin þurfa að komast yfir.

Sama á við um samningstímann. Á suðursvæði hafa samningar um atvinnustarfsemi árum saman verið gerðir til skamms tíma, jafnvel eins árs í senn.

Hvernig á að byggja upp mannauð þegar ekki er ljóst hvort starfsemin verður leyfð árið eftir?

Hvernig á að fjárfesta í húsnæði, tækjum og búnaði þegar rekstrargrundvöllurinn er ótryggur?

Skammtímaóvissa getur haft áhrif á vilja og getu fyrirtækja til fjárfestinga. Það er erfitt að gera miklar kröfur um fagmennsku, öryggi og uppbyggingu ef rekstrarumhverfið sjálft er ófyrirsjáanlegt.

Hvar er jafnræðið?

Suðursvæðið hefur árum saman búið við sérstakt leyfisfyrirkomulag og umfangsmiklar kröfur til atvinnustarfsemi, á meðan fyrirkomulagið er annað á öðrum svæðum þjóðgarðsins.

Af hverju eiga atvinnurekendur á einu svæði að búa við annað rekstrarumhverfi en þeir sem starfa á öðrum svæðum innan sama þjóðgarðs?

Aðstæður og starfsemi geta vissulega verið ólíkar. En ef reglur og kvaðir eru mismunandi þarf að vera hægt að útskýra muninn með málefnalegum og skiljanlegum hætti. Það verður enn mikilvægara þegar lögin leggja áherslu á samræmingu í starfsemi rekstrarsvæða.

Náttúruvernd og atvinnulíf geta farið saman. Náttúruvernd þarf að vera öflug, en hún þarf ekki að vera andstæð atvinnulífinu.

Þeir sem starfa innan þjóðgarðsins eru mikilvægir samstarfsaðilar í verndun svæðisins. Þeir vinna á vettvangi, þekkja aðstæður og hafa mikla hagsmuni af því að náttúran verði fyrir eins litlum áhrifum og mögulegt er.

Málið snýst því ekki um að draga úr kröfum um náttúruvernd. Það snýst um að kröfurnar séu sanngjarnar, hæfni sé metin út frá bæði menntun og reynslu, umsóknir séu afgreiddar með eðlilegum hraða og sömu grundvallarsjónarmið gildi um atvinnulíf innan alls þjóðgarðsins.

Við þurfum lengri og fyrirsjáanlegri samninga, skýrar og samræmdar reglur, skilvirkara umsóknarferli og raunverulegt jafnræði milli rekstrarsvæða.

Atvinnurekendur eiga að þurfa að standast strangar kröfur þegar náttúra og öryggi eru annars vegar. En kerfið verður líka að standast kröfur um skilvirkni, sanngirni og fyrirsjáanleika.

Atvinnustefna sem á að styrkja byggð en gerir uppbyggingu óþarflega erfiða þarf að endurskoða. Ekki vegna þess að gerðar séu kröfur – heldur vegna þess að kröfurnar verða að fylgja raunverulegum aðstæðum hvers svæðis.

Annars er atvinnustefnan sjálf orðin hindrunin.

Laufey Guðmundsdóttir
Greinarhöfundur á og rekur ferðaþjónustufyrirtæki í Austur-Skaftafellssýslu.

Tags: