
Nýtt hjúkrunarheimili við Skjólgarð á Höfn var vígt á dögunum að viðstöddu fjölmenni. Með nýbyggingunni er stigið stórt skref í uppbyggingu hjúkrunarþjónustu í Hornafirði og gjörbreytist aðstaða bæði íbúa og starfsfólks.
Nýbyggingin er fyrri áfangi stærra verkefnis sem felur einnig í sér umfangsmiklar endurbætur á eldra húsnæði Skjólgarðs. Þegar framkvæmdum lýkur verða á heimilinu 30 hjúkrunarrými og þrjú sjúkrarými, auk aðstöðu fyrir sjúkraþjálfun og dagdvöl. Hjúkrunarrýmum fjölgar þá um sex.


Samkomulag ríkis og sveitarfélags um byggingu nýs hjúkrunarheimilis var undirritað árið 2018 og fyrsta skóflustunga tekin í september 2022. BASALT arkitektar og EFLA verkfræðistofa hönnuðu heimilið, en við hönnun þess var meðal annars lögð áhersla á vistlegt umhverfi, góð útisvæði, einkarými íbúa og að nýta hið einstaka útsýni frá Skjólgarði.
Við vígsluna færðu Hirðingjarnir Skjólgarði fjórar milljónir króna að gjöf. Hirðingjarnir hafa um árabil verið ötulir við að styðja við Skjólgarð og lagt heimilinu lið með gjöfum til ýmissa verkefna og búnaðarkaupa.
„Þetta eru langþráð og mikilvæg tímamót. Hér mun fara vel um heimilisfólk,“ sagði Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri við vígsluna og þakkaði jafnframt starfsfólki Skjólgarðs fyrir þeirra þátt í að skapa gott heimili þrátt fyrir krefjandi framkvæmdatíma.



Kristján Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vigdísarholts, sagði vígsluna sérstaka ánægjustund og nýja heimilið færa aðstöðu íbúa og starfsfólks til nútímahorfs.
Næsti áfangi verkefnisins er endurbætur á eldra húsnæði Skjólgarðs og verður sá hluti framkvæmdanna boðinn út sérstaklega.
Íbúum verður boðið að koma og skoða nýja Skjólgarð í september. Nánari upplýsingar um heimsóknina verða auglýstar sérstaklega.





