Nýheimar þekkingarsetur leiðir nú tilraunaverkefni undir hatti félagsins Gefum íslensku séns, sem er stutt af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga. Gefum íslensku séns starfar á landsvísu og stendur meðal annars fyrir vitundarvakningu sem beint er að íslenskumælandi íbúum. Félagið hvetur þá sem tala íslensku til að hjálpa nýjum íbúum að læra með því að sýna þolinmæði og tala málið við þá.

Auglýsing

Hugmyndin að verkefninu Kynnumst yfir kvöldverði er einföld. Lagt er upp með að skapa hlýjan og persónulegan vettvang þar sem fólk kemur saman yfir heimilismat og gefst kostur á að kynnast, deila sögum, menningu og lífsreynslu, spila á spil eða eiga góða stund á þann hátt sem þátttakendum finnst passa best. Heimafólki í Sveitarfélaginu Hornafirði er boðin eingreiðsla til þess að kaupa inn í kvöldmáltíð og bjóða nýjum íbúum sveitarfélagsins af erlendum uppruna heim til sín í mat. Þessi kvöldstund getur veitt nýjum íbúum tækifæri til þess að stíga fyrstu skrefin í íslenskunámi og dýpka skilning á samfélaginu í gegnum samveru og óformlegt spjall. Þátttaka gefur heimamönnum kost á að kynnast nýjum nágrönnum sínum og fræðast um bakgrunn þeirra. Markmiðið með verkefninu er að styrkja samfélagið, efla tengsl á milli íbúa og skapa jákvæða upplifun af því að tilheyra sama samfélagi.

Fyrirkomulagið er þannig að þú skráir þína fjölskyldu og tilgreinir hversu mörg þið eruð í heimili og á hvaða aldri börnin eru, ef það á við. Einnig hakar þú við á hvaða tímabili þið gætuð hugsað ykkur að taka á móti gestum. Tekið skal fram að einstaklingum og vinum er velkomið að taka þátt og vera gestgjafar. Við hjá Nýheimum þekkingarsetri höfum síðan samband þegar við höfum fengið skráningu nýrra íbúa og pörum saman við skráningu heimafólks. Gert er ráð fyrir að skráningu gestgjafa ljúki um miðjan september og máltíðirnar fari fram í október eða nóvember, eftir hentugleika hvers og eins. Lagt er upp úr að íslenska verði notuð í bland við ensku, eins mikið og hægt er, þannig að gott flæði skapist en íslenskan sé til staðar.

Langar þig að aðstoða nýja íbúa sveitarfélagsins við menningarlæsi og fyrstu skref í íslenskunámi? Býrð þú á Höfn, í Suðursveit, Öræfum, Lóni, Nesjum eða á Mýrum og vilt taka á móti nýjum íbúum í kvöldmat í eitt skipti?

Skráning gestgjafa fer fram í gegnum QR-kóðann, eða með því að senda póst á eva@nyheimar.is.

Tags: