
Starfsár Kiwanisklúbbsins Óss á Höfn í Hornafirði 2025–2026 einkenndist af öflugu félagsstarfi og fjölbreyttum verkefnum. Klúbburinn starfar undir kjörorði Kiwanis, „Hjálpum börnum heimsins“, og leggur ríka áherslu á að efla samfélagið með stuðningi við börn, fjölskyldur og önnur mikilvæg samfélagsverkefni. Um leið er lögð rækt við gott félagslíf og öflugt samstarf við fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga í heimabyggð.
Helstu fjáröflunarverkefni klúbbsins eru jólatréssalan í Jólaþorpi Kiwanis, hið vinsæla páskabingó og góðgerðarveisla. Allur ágóði rennur í Styrktarsjóð Óss, sem veitir árlega stuðning til fjölmargra verðugra verkefna í Hornafirði. Hefur Ós meðal annars veitt stuðning til bágstaddra fjölskyldna í samstarfi við Samfélagssjóð Hornafjarðar og Nettó, en auk þess styrkt leikskóla, grunnskóla, framhaldsskólann og heilbrigðisþjónustu. Klúbburinn hélt einnig áfram að styrkja kaup á sérhæfðum íþróttagleraugum fyrir börn og lagði sitt af mörkum til að gleðja fjölskyldur um jólin með gjöfum til barna.
Félagar í Ósi tóku virkan þátt í starfi Kiwanis á landsvísu og studdu jafnframt alþjóðleg verkefni hreyfingarinnar sem miða að því að bæta hag barna um allan heim. Á síðasta starfsári veitti Ós 500.000 króna framlag til Kiwanis Children Fund (KCF). Slíkt framlag telst styrktarinnlegg í KCF. Kiwanis á Íslandi hefur um árabil staðið fyrir öflugum samfélagsverkefnum, svo sem hjálmaverkefninu fyrir sex ára börn og K-dags söfnunum til styrktar einstökum börnum og öðrum mikilvægum málefnum.
Á starfsárinu var einnig áfram unnið markvisst að því að efla félagsstarfið og fjölga félögum. Sérstök áhersla hefur verið lögð á undirbúning að stofnun nýs kvennaklúbbs á Hornafirði. Undanfarin ár hefur starfað svokallaður hliðarklúbbur kvenna innan Óss og hefur þeim sem taka þátt í því starfi fjölgað jafnt og þétt. Markmiðið er að stofna sjálfstæðan Kiwanisklúbb kvenna þegar nægjanlegur fjöldi félaga hefur bæst í hópinn. Verður kvennaklúbburinn vígður á umdæmisþinginu sem verður haldið á Höfn í Hornafirði í september næskomandi. Þetta verkefni er mikilvægt skref í endurnýjun og eflingu Kiwanisstarfsins á svæðinu og mun skapa fleiri tækifæri fyrir konur til virkrar þátttöku í þjónustustarfi hreyfingarinnar.
Dagana 10. – 13. september verður umdæmisþing Kiwanis haldið hér á Höfn en núverandi umdæmisstjóri er félagi í Ós, Sigurður Einar Sigurðsson. Við eigum von á því að þá daga mæti 200 – 300 Kiwanisfélagar, víðsvegar af landinu og frá Færeryjum til Hafnar. Á næsta starfsári verður jafnframt haldið upp á merk tímamót þegar Kiwanisklúbburinn Ós fagnar 40 ára afmæli sínu árið 2027. Stefnt er að veglegri afmælishátíð sem verður um leið tækifæri til að minnast þeirra fjölmörgu verkefna sem félagar hafa unnið að í þágu samfélagsins frá stofnun klúbbsins árið 1987.
Stjórn Kiwanisklúbbsins Óss vill að lokum færa öllum félagsmönnum, velunnurum, fyrirtækjum og samstarfsaðilum innilegar þakkir fyrir stuðning og þátttöku á starfsárinu. Án þess öfluga baklands væri ekki unnt að sinna því mikilvæga starfi sem Kiwanis stendur fyrir – að bæta samfélagið og leggja sitt af mörkum til betri framtíðar fyrir börnin. Ef þú lesandi góður vilt leggja hönd á plóg í jafn öflugu góðgerðastarfi og Kiwanisklúbburinn Ós sinnir er hægt að skrá sig í klúbbinn í gegnum póstfangið os@kiwanis.is.




