
Um þessar mundir er nóg um að vera á suðurhluta Vatnajökulsþjóðgarðs eins og venja er á þessum árstíma. Vetrarferðaþjónustan er búin þetta misserið og er sumartraffíkin tekin við.
Sumarstarfsfólk er að koma til starfa og mikil orka á svæðinu. Það eru alltaf jákvæð kaflaskil fyrir okkur hin sem störfum í þjóðgarðinum allt árið um kring að taka á móti og hitta nýtt sem og eldra starfsfólk sem ver sumrunum með okkur og náttúru þjóðgarðsins.
Á sumrin iðar allt af lífi í þjóðgarðinum, dýralífið, gróðurinn og ekki síður mannlífið. Fræðslugöngur eru daglegur viðburður í Skaftafelli, á Fjallsárlóni og við Jökulsárlón auk fjölbreyttra sér viðburða yfir sumarið. Landverðir í Skaftafelli halda til að mynda sérstaka fræðslugöngu í tilefni af degi villtra blóma þann 14. júní, öll eru velkomin – stór sem smá! Við hvetjum öll til þess að fara inn á vefsíðu þjóðgarðsins og kynna sér fræðsludagskrá sumarsins! www.vjp.is
Gestafjöldi í Skaftafelli yfir sumartíman er um 335,000 og við Jökulsárlón 420,000 (maí – ágúst) og það gefur því auga leið að nóg er um að vera. Viðhald og nýlagning á göngustígum, vöktun á gróðri og dýralífi, fræðsla og móttaka gesta eru dæmi um það sem landverðir fást við á sumrin. Starfsmannafjöldi fer úr 14 í 30 í Skaftafelli en á Breiðamerkursandi helst starfsmannafjöldinn sá sam, eða 12 landverðir og yfirlandverðir. Þar að auki er 6 manna starfsstöð á Höfn.
Starfsfólk í Skaftafelli, á Breiðamerkursandi og á Höfn býður ykkur hjartanlega velkomin í Vatnajökulsþjóðgarð!




