Vaka Sif tekur við hvatningarverðlaununum

Vaka Sif Tjörvadóttir, 18 ára nemandi við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu, hlaut laugardaginn 26. september sérstök hvatningarverðlaun á Vísindavöku Rannís í Laugardalshöll fyrir vísindasmiðjuna Vísindi í verki.

Auglýsing

Vaka Sif setti vísindasmiðjuna á laggirnar síðastliðið sumar. Hugmyndin var að bjóða börnum í Hornafirði upp á skemmtilegt sumarnámskeið þar sem þau fengju að kynnast vísindum með verklegum tilraunum og prófa sjálf að rannsaka, skapa og uppgötva.

Frá vísindasmiðjunni í sumar

Vaka hafði sjálf frumkvæði að smiðjunni og sá um skipulagningu og undirbúning námskeiðsins. Hún undirbjó tilraunir og verkefni, prófaði þau fyrirfram og aflaði búnaðar og þeirra aðfanga sem þurfti til framkvæmdarinnar.

FAS studdi verkefnið með því að lána Vöku húsnæði fyrir námskeiðin og ýmsan búnað úr náttúrufræðikennslu skólans. Sveitarfélagið Hornafjörður tók námskeiðið inn í sumardagskrá sína og sá meðal annars um skráningu þátttakenda og kynningu.

Starfsmenn Rannís tóku viðtal við Vöku Sif af tilefninu

Áhuginn reyndist mikill og námskeiðin fullbókuðust. Boðið var upp á námskeið fyrir tvo aldurshópa og fengu börnin sjálf að taka virkan þátt í fjölbreyttum vísindatilraunum. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og börnin voru ánægð með námskeiðin. Einn þátttakandi lét meðal annars þau orð falla að nú vildi hún verða vísindakona.

FAS óskar Vöku Sif innilega til hamingju með verðlaunin og er sérstaklega ánægjulegt að hafa getað lagt verkefninu lið með aðstöðu og búnaði. Verkefnið sýnir vel hversu langt góð hugmynd og frumkvæði geta náð.

Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu
Aðsend grein

Tags: