Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu hóf í haust að bjóða upp á nám í trésmíði í samstarfi við Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað. Nemendur taka bóklega og fagbóklega áfanga í Hornafirði en hluta verklega námsins í lotum í VA.

Auglýsing

Síðastliðinn fimmtudag fóru ellefu nemendur í trésmíði í fyrstu lotuna í Verkmenntaskóla Austurlands (VA) í Neskaupstað ásamt kennurum. Lagt var af stað eftir kennslu í FAS og hópurinn kom á áfangastað um kvöldmatarleytið. Hópurinn gisti á heimavist skólans og því var stutt að fara í smíðastofuna.

Nemendur mættu galvaskir í skólann klukkan 8 næstu tvo morgna enda mikið fram undan. Námið einkenndist af verklegri kennslu í trésmíði og fengu nemendur að kynnast vel búnu smíðaverkstæði skólans. Þeir fengu meðal annars kennslu í notkun plötusagar, afréttara, þykktarhefils og fleiri tækja sem notuð eru við verkefnavinnuna.

Fyrsta verklega verkefnið var að smíða skemil. Nemendur luku því og byrjuðu síðan á næsta verkefni, sem er að smíða koll.

Eftir kennslu á laugardag var haldið aftur til Hafnar. Allir voru sammála um að fyrsta lotan hefði verið bæði lærdómsrík og skemmtileg.

„Við viljum þakka VA kærlega fyrir góðar móttökur og hlökkum til frekara samstarfs við skólann,“ segir í frétt FAS.

Fréttin birtist fyrst á fas.is.

Tags: