Vel heppnuð námsferð Lista- og menningarsviðs FAS

0
1002

Lista- og menningarsvið FAS fór í námsferð til Akureyrar dagana
14. til 16. nóvember. 20 nemendur úr myndlista-, ljósmynda-, kvikmynda- og leiklistaráföngum fóru í ferðina með þremur kennurum. Gist var á gistiheimilinu Akureyri Backpackers sem er í miðbæ Akureyrar.
Lagt var af stað frá FAS kl. 8:00 miðvikudags morguninn
14. nóv. og komið til Akureyrar um kl. 15:00. Fyrsta heimsóknin var síðan í Listasafn Akureyrar kl.16:00. Eftir kvöldmat var síðan farið í fallegu kvöldveðri í gönguferð um innbæinn þar sem nemunum voru sagðar sögulegar staðreyndir um uppbyggingu eyrarinnar, sögur af fólki og einstökum húsum.
Fimmtudagsmorguninn var þétt planaður og hófst með heimsókn í Verkmenntaskóla Akur­eyrar, Menningarhúsið HOF, Tónlistar­skólann, Samkomuhúsið þar sem LA hefur nú aftur starfsemi sína, við heimsóttum listamannakompaníið Kaktus og deginum lauk síðan á sýningunni Lína langsokkur hjá Freyvangsleikhúsinu.
Föstudagurinn, dagur íslenskrar tungu, byrjaði með heimsókn í kvikmyndaver sjónvarpsstöðvarinnar N4. Þar fengu nemendur að kynnast hvernig bein útsending fer fram með því að sjá og taka þátt í „plat“ útsendingu. Síðan lá leiðin í Minjasafn Akureyrar þar var verið að opna hina árlegu jólasýningu safnsins en jafnframt fékk hópurinn að skoða æskuheimili Nonna, Jóns Sveinssonar og gaman að geta þess að 16. nóvember er fæðingadagur hans. Eftir þessa heimsókn héldum við síðan heim á leið með stoppi við Goðafoss og matarpásu á Egilsstöðum.
Þessi ferð er fyrst og fremst hugsuð til að kynna nemendum hvað sé að gerast í öðrum bæjarfélögum en jafnframt til að kunna að meta og skilja hversu margir möguleikar finnast í heimabyggð.
Mottó ferðarinnar var samvinna, traust og virðing, hvert fyrir öðru og ekki síður fyrir því fólki sem tekur á móti okkur opnum örmum og kynnir fyrir hópnum starfsemi sína og hugmyndir.
Það er skemmtilegt að geta þess að allsstaðar fékk hópurinn einstaklega góð meðmæli og þakkir fyrir hversu gaman hefði verið að taka á móti þeim.

Stefán Sturla
Umsjónarmaður Lista og menningarsviðs FAS